Myndasýning.

Við fórum á hátíðarhöldin í Grindavík í dag og var boðið upp á uppblásin leiktæki og fullt af nammi og fleyra,börnin höfðu ekki mikin áhuga fyrir þessum uppblásnu tækum foreldrunum til mikillar ánægju það var svo langar raðir og þau nenntu ekki að bíða,en mig langar bara að sýna hér í myndum það sem börnin gerðu og svo var bara gengið um svæðið.

Sjómannadagurinn 2008 001

 

 

 

 

 

 

 

 

Ásta fór í velti bílinn 3 veltur hér er hún á kvolfi.

Sjómannadagurinn 2008 002

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var farið um borð í Odd V Gíslason(Sverrir fannst mjög skrítið að báturinn væri Gíslason eins og hann)

Sjómannadagurinn 2008 010

 

 

 

 

 

 

 

 

Sverrir fór á fjórhjól smá torfærubraut hér er Sverrir til í slaginn.

Sjómannadagurinn 2008 012

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér fer Ásta af stað á fjórhjólinu.(hún fékk aðalsætið eins og stjórnandinn sagði)

Sjómannadagurinn 2008 020

 

 

 

 

 

 

 

 

Ásta Sigríður skellti sér líka á mótorhjól með Grindjánum (Bifhjólaklúbbur hér)og kom alsæl til bara tróða sér svo fremst í röðina og aftur með sama manninum ég ætlaði að leifa fleyrum og sagði hún er búin að fara en maðurinn tók hana upp og sagði allt í lagi hún fer bara aftur og þar með var hún farin aðra ferð en ég flítti mér í burtu með hana áður en ég misti hana í 3 ferðina Whistling.

Sverrir vildi ekki prufa mótorhjól varð pínu hissa en þó ekki hann er með svakalega lítið hjarta og fannst mér gott að hann hætti ekki við fjórhjólið...Auður var mest lítið með okkur svo það eru engar myndir af henni en hún hringdi í mig og spurði hvort hún mætti stökkva í sjóinn og ég alveg NEI.. og er guðs lifandi fegin að hafa ekki séð þegar hún stökk FootinMouthman enn eftir því þegar Hilmar gerði þetta þá minnir mig að hann hafi verið 15 ára hann fór í fötum til að stökkva því hann var búin að tala um það heima áður en við fórum og svo stökk hann og ég hélt að ég...úff móðurhjartað var alveg í buxunu og svo sagði ég Gísla að láta mig vita hvort væri í lagi og þá leit ég ofan í höfnina og sá þegar hann var togaður upp í björgunarbát...ég veit að það eru fullt að mönnum og bátum til að bjarga en ég hlít að meiga láta svona ég bara get ekki gert að þessu....þetta eru börnin mín.

En þetta er dagurinn í dag kemur í ljós hvað gerist á morgunn...góðar stundir. 

Set fleyrir myndir frá deginum í albúm merkt.....börnin mín 

Kveðja Heiður. 


Stór stelpa Stór kisa og eitthvað fleyra.

Jæja þá er sjómannahelgin að ganga í garð og hér í Grindavík og sjóarinn síkáti að mæta á svæðið hér er mikið um að vera alla helgina og byrjar þetta í gær en svo er mikið um að vera hér bryggjuball í kvöld leiktæki og skemmtun allan laugardaginn og sunnudaginn.

En svo er stór dagur í lífi Ástu Sigríðar hún er að hætta á leikskólanum í dag og í morgunn fór hún hress og vösk að venju og sagði mamma þegar leikskólinn er búin í dag þá er ég ekki lengur á leikskóla því ég er orðin stór Whistling en kl 17 verður vorgleði í leikskólanum og er ferðinni heitið í skógin við seltjörn og þar á að grilla pylsur og leika saman með börnunum í 2 tíma þetta verður bara gaman svo verður farið heim og ef verður ekki mikil rigning þá er bara bryggjuball í kvöld.

Annars er allt gott að frétta skólinn alveg að klárast skólaslit á máundaginn og komin mikil tilhlökkun í Auði og Sverrir ég þarf að mæta á 2 af þremur skólaslitum þetta árið....

Svo er smá kisu fæsla hér í restina ég á litla skrítna kisustelpu sem heldur að hún sé stór(eins og fleyrum á þessu heimili) en hún vill semsagt ekki borða neinn ketlinga mat hún borða bara fæði eins og Sokkur og Sokkur borða ketlinga fæðið og hvað þá hann verður feiturW00tég fór og keypti ól og merki á fröken Skellu því hún heldur líka að maður geti farið á flakk og ekki nema 8 vikna og mér var sagt að það væri allt í lagi að hún borðaði matinn hans Sokks en gefa henni vítamín svo það var keypt svona ketlinga vítamín en ætli sé ekki best að segja henni að þetta sé fyrir stóra kisu....Smile.

Jæja er farin að sækja stóra barnið sem er að hætta á leikskóla....kveðja Heiður  


Ástand húsa.

Þetta er alveg hrikalegt að sjá myndir úff það er allt meira og minna allt ónýtt hjá fólki

En vonandi getur fólk snúið heim og skoða aðstæður hjá sér sem fyrst.

Maður þakkar guði fyrir að ekki urðu stór slys í þessum skjálfta,ég var sjálf stödd fyrir utan hús í Reykjavík þegar stór skjálftinn reið yfir ég hélt að þetta ætlaði engann enda að taka.

 


mbl.is Metið hvort fólk getur farið heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

29,maí 2008.

Jæja hér fór prinsessan á leikskólann í morgunn þetta er sko næstsíðasti dagurinn og allir hressir.

Við erum að fara í bæinn ekki alveg í neina skemmtiferð en í dag á að jarða hana Sjöbbu frænku (frænka Gísla) sem dó 22 maí.

Búið er að dreifa minstu börnunum nokkuð jaft um Grindavík í pössun en Auður verður hér heima hún ætlar að fara til tannlæknis. 

En ég ætla að nota ferðina og athuga með ól á Skellu hún er búin að fatta hvernig á að komast út úr þessu húsi og þegar restina af fjölskyldunni fattar það hleipur það eins og óðar manneskjur á eftir henni til að passa að hún tínist ekki og hún skilur ekki hverslags þetta er W00t.

En jæja best að búa sig af stað kveðja Heiður. 

 


Útskriftin hennar Ástu.

Jæja þá er útskriftin hjá Ástu búin og tókst þetta mjög vel og ekki var laust við að móðirinn finndist þetta skrítið og tilfinningin blendin að litla barnið væri að ljúka leikskólagöngunni,Hulda leikskólastjóri hélt ræðu og voru krakkarnir voða stilt og góð svo sungu börnin umhverfislagið og spiluðu krummi svaf í kletta gjá á heima tilbúnar trommur rosalega flott,svo fengu börnin öll útskriftaskjal,mynd af hópnum,verkefni sem þau unnu í vetur og ljóðabók og hafa öll börnin rímað og það svo sett í bók.Hér koma myndir af Ástu Sigríði útskriftadömu.

Set hér rímuna hennar Ástu....Ég sá flösku vera að fara ofan í tösku... 

útskrift hjá Ástu 28 maí 2008. 020

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er Ásta með útskrifta skjalið og rósina. 

útskrift hjá Ástu 28 maí 2008. 014

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er allur hópurinn að spila á heimatilbúnar trommur,(Krummi svaf í kletta gjá.) 

útskrift hjá Ástu 28 maí 2008. 003

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér var tekið framm krullujárn til að vera svo fín.

Kveðja Heiður og Ásta Sigríður. 


Ásta Sigríður

ætlar að útskrifast af leikskólanum í dag Winkþrátt fyrir vandamál gærdagsins getum við mæðgur mætt á útskriftina í dag,eins og deildarstjórinn sagði í morgunn það er alls ekki hægt að taka þetta frá henni annars er húnörugglega búin að smita ef hún ætti að gera það því hún var á leikskólanum í gær en er komin á lyf og er nú að komast yfir smit tímabilið,hún er heima og mætir bara klukkan 15 í útskrifina en það er auðvita búið að vera mikið að gera fara í bað og athuga með föt til að fara í og svo á eftir að laga hárið hún ætlar að vera FÍN og flott nema hvað þetta er fyrsta útskriftin á lífsleiðinni....ég ætla að taka myndir og set hér seinna í dag.

Sverrir fór svo í fjölskyldu og húsdýragarðinn í morgunn og ætlaði ég með honum en það gekk ekki svo hann fór bara einn í rútunni en pínu sár en ég vona að allt gangi vel næst þegar farið verður og ég get farið með honum....

Kveðja Heiður. 


Hér er mætt eyrnabólga.

Núna sit ég hér og bíð eftir að klukkan verði ca 15,það var hringt í mig um 13,30 úr leikskólanum og Ásta var komin með í eyrun grét sárt í korter og sagði fóstran að þegar hún er farin að gráta svona þá er eitthvað að,ég hringdi upp á heilsugæslu og athuga hvort væri möguleiki að troða henni á milli en NEI það er ekki hægt svo nú bíð ég eftir að komast á læknavaktina inn í Keflavík og hún byrjar kl 16 en það er byrjað að skrá inn kl 15,30 og þá ætla ég að vera mætt og vona að ég þurfi ekki að bíða í marga klukkutíma,við mæðgur þyggjum alla góða strauma því á morgunn er stór dagur hjá Ástu hún ætlar að útskrifast af leikskólanum þá er nú gott að vera hress....en ég er farin að bíða meira og læt heyra í mér þegar við komum heim..

-----------------------------------------------------------------------

VIÐBÓT.

Jæja við erum komnar heim komumst fljótt að hjá lækninum og engin eyrnabólga vökvi og hella en hálsbólga eða stektokokka sýking og sem sagt pencilin,engin leikskóli á morgunn en ég ætla að athuga hvort hún má koma á útskriftina læknirinn taldi að hún yrði hætt að smita um 15 á morgunn svo við vonum allt það besta.

Kveðja Heiður og Ásta lasna. 


Við erum svo sátt.


Á föstudaginn fór Gísli og náði í krossinn á leiðið hjá Dísu tengda mömmu hann var svakalega fallegur og við ánægð með hann,svo í dag var farið af stað í kirkjugarðinn  og hann settur á sinn stað en fyrst var farið í Garðheima og kaupa blóm á leiðið og athuga hvort væru til einhverjir englar á leiði þetta gekk vel og við keyptum stjúpur og blóm sem heita flaugelsblóm svo fórum við og skoðuðum hvað til væri af englum og við fundum engil sem okkur fannst ganga vel hjá ömmu,svo lá leiðin upp í kirkjugarð og Ásta og Sverrir voru með okkur og voru voða spennt að taka til hendinni hjá ömmu og Ásta fór og ætlaði að skoða gamla krossinn og þá brotnaði hann þannig að þetta mátti ekki tæpara standa að koma með nýjan(hún varð nú hálf kjánaleg á svipin þegar hún sá að hann brotnaði en allt lagaðist þegar við sögðum allt í lagi við setjum nýja krossinn) svo hjálpuðust allir að við að gera fínt,ég tók myndir sem ég set hér með fæslunni en svo er albúm merkt Kirkjugaður sem ég set fleyri myndir.

Leiði Dísu maí 2008 001

 

 

 

 

 

 

 

 

Svona fór krossinn.

Leiði Dísu maí 2008 004

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er eftir að nýji krossinn og blóm komin.

Rosalega vorum við ánægð þegar þetta var búið og við erum svo sátt og glöð. 

 

Svo þegar við komum  heim fór ég hér út í garð og tók aðeins til í trjábeðinu en er ekki alveg búin vonandi verður þokkalegt veður á morgun þá get ég gert meira svo keypti ég nokkur blóm sem ég ætla að setja hér í potta fyrir framan húsið....

Vonandi eiga allir gott kvöld ég ætla að koma mér vel fyrir í sófanum og glápa á kassannnn...

Kveðja Heiður. 


23 Maí 2008.

Í dag var haldin vorgleði hjá skólanum og var Ásta bara í fríi á leikskólanum og kom með í skólann það er ýmislegt gert til skemtunar og er smíðastofan opin og handavinnustofan svo er hægt að föndra hatta tískusýning frá verslunum hér í bæ og svo er boðið upp á andlitsmálun og ef ég finn ekki Sverrir þá er bara að fara í smíðastofuna og hann er þar Smile að smíða sverð og hnífa þannig að ég fer klifjuð sverðum og hnífum eftir þessa skemmtun í skólanum W00t en í dag var vindur smá rigning og frekar kalt þannig sem er ekki eins gaman og ef er sól og gott veður og svo býður foreldrafélagið upp á pylsur svala og prins póló til sölu og allir fara saddir heim....svo er það hefð að kíwanis menn í Grindavík gefi 3 bekk hjóla hjálma og fékk Sverrir því nýjan hjálm á hausinn....Ásta fór og lét mála sig í framan og ætla ég að sýna ykkur listaverkið.

Ágúst.Eyji Ásta og Auður 003

Svo þegar við vorum rétt komin heim þá komu Ásta Eyjólfur og Ágúst til að sækja Auði en hún ætlar að vera í Keflavíkinni um helgina og hjálpa til við að passa Eyjólf.

Ég man ekki neitt fleyra í bili þannig að ég kveð í bili.

=====================================

En ég ætla að setja hér söfnunina fyrir hana Öldu sem var að greinast með illkynja sjúkdóm og þarf að fara í mikla meðferð þessi fjölskylda þarf hjálp á þessum erfiðu tímum og munum að .....margt smátt gerir eitt strórt.....

Mér var bent á þetta og birti þetta hérna ;

Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu
fimmtudagur, 22 maí 2008

Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá, Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda sem er borin og barnfæddur hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar.

Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum.  Lárus og  Alda  eiga þrjár  litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7ára. sem þurfa á hans umönnun að halda, og einnig okkar stuðnings í þessari baráttu.
Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur handa þessari fjölskyldu í Sparisjóð Hornafjarðar.
Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum  þeim lið!!
Margt smátt gerir eitt stórt.

Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379.

Velunnarar

 

 


Jæja við erum bara með á laugardaginn...

Jæja frábær árangur hjá Friðrik og Regínu í kvöld glæsilegt að komast í keppnina á laugardaginn hlakka til að horfa Wink.

En annars er allt gott að frétta hér hef ekki neitt að segja sérstakt en setti hér fyrir neðan söfnun fyrir Öldu sem var að greynast með alvarlegan sjúkdóm sem tekur á alla hennar fjölskyldu og vini og er hafin söfnun fyrir hana við skulum muna að.....margt smátt gerir eitt stórt.....

Bíð góða nótt kæru vinir.

______________________________________________________________________________

Mér var bent á þetta og birti þetta hérna ;

Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu
fimmtudagur, 22 maí 2008

Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá, Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda sem er borin og barnfæddur hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar.

Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum.  Lárus og  Alda  eiga þrjár  litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7ára. sem þurfa á hans umönnun að halda, og einnig okkar stuðnings í þessari baráttu.
Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur handa þessari fjölskyldu í Sparisjóð Hornafjarðar.
Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum  þeim lið!!
Margt smátt gerir eitt stórt.

Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379.

Velunnarar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband