.......

Ég var að reyna að skanna inn mynd sem Auður fann í dag Auður teiknaði hana þegar hún var 7 ára eða í 2 bekk rosalega flott mynd hún hafði klipt út eina stelpu og einn strák þau haldast í hendur og fyrir ofna stendur Auður og Hilmar rosalega fannst mér þetta flott en það gekk ekki hjá mér að koma þessu inn í tölvuna því miður það kom alltaf bara helmingurinn af myndinni en ef það tekst hjá mér þá set ég þetta inn hér á síðuna.

Annars er þessi dagur búin að vera svipaður og aðrir dagar hjá okkur það er auðvita mikil spenna að fá litlu kisuna en hún er bara mánaða gömul svo það er ekki alveg að koma að því og er mikið búið að spá í nafn á hann þau vilja ekki nafn af teiknimynda persónu reyndar kom pabbi þeirra með hugmynd um að skíra hann .....grjónagraut.....heheeh og það er vegna þess að Hjalli bróðir þeirra á kisu sem heitir Kanell en allar hugmyndir eru vel þegnar annars var frænka mín að segja að það geti verið gott að sjá hann þá kemur nafnið.

Jæja komin tími til að klára að elda mat þakka þeim sem lesa kveðja Heiður. 

Langar að setja inn mynd af Auði á fyrstu fimleika sýningunni  sinni var að skoða gamlar myndir og mér finnst þessi svo flott. Auður er að fá verðlauna pening.

IMG_8020

 


Jæja það kom

að því að foreldranir gáfu eftir með að fá ketling á heimilið ég á reyndar eftir að tala við Sollu um að fá ketlinginn...Ragnheiður og Steinar komu til okkar í dag og buðu Auði að koma með sér í Keflavík að skoða ketlingana hjá Sollu  dóttir Röggu og þegar hún kom heim sagði hún maaaaammma ég sá svo sætan ketling hann er svartur og hvítur og hann var einn út í horni og horfði á mig svona(svo lék hún hvernig hann horfði á hana) þetta gerði Hilmar líka einu sinni þegar hann náði í unga í hreyður út í  móa þegar hann var ca 13 ára ég á eftir að tala við Röggu um að fá númerið hjá Sollu og ath hvort við getum fengið hann... það er mikil hamingja hjá unga fólkinu á heimilinu núna Smile Ásta er alveg með allt á hreinu hvað þarf að kaupa fyrir litlu kisuna og búin að telja upp langan lista fyrir mig.

Jæja gott í bili þarf að fara að klára að elda matinn  kveðja Heiður. 


2 dagar.

Mér vanst ekki tími í gær til að skrifa hér svo það koma bara 2 dagar saman núna ég fór með mömmu í Garðabæinn til bróðir hennar hún var að fara að fylgja gamalli frænku minni til grafar og fór með þeim hjónunum ég notaði ferðina og fór og verslaði í matinn ég var svo heppin að hann Haukur Atli frændi minn var hér hjá okkur og hann tók á móti Sverri og Auði úr skólanum og þurfti ég ekki að fá einhveja vinkonu til að taka á móti sverri hann var auðvita hæst ánægður að geta bara röllt heim þegar ég var búin að ganga frá því sem ég verslaði þá lagðist ég upp í sófa og kvíldi mig smá stund (var svo þreitt eftir þessa RVK ferð)eða þangað til ég fór að sækja Ástu á leikskólann svo bara slaka framm að mat börnin óskuðu sérstaklega eftir að við myndum panta pitzu og það var gert mikil gleði hjá þeim Smile svo í gærkvöldi þurfti ég að skreppa út því nú er fimleika deildin að fara af stað og þar hafa stelpurnar báðar æft og ég er í stjórn deildarinnar

Í dag fórum við svo í afmæli hjá Stínu frænku hún varð 60 ára á fimmtudaginn og voru börnin hennar að halda upp á það í dag hún vissi ekki að börnin væru að gera þetta og kom það henni mikið á óvart að sjá fullan sal af fólki því hún vissi ekki betur en hún væri að fara að skoða þennan sal fyrir veislu sem á að vera um næstu helgi hjá þeim en börnin hennar eiga mikinn heiður skilið fyrir að geta leint Þessu fyrir henni og var allt gert maðurinn hennar fór með hana til Danmerkur til að börnin gætu græjað afmælið...LoL Til hamingju með daginn Stína frænka...

Þetta er svona það helsta síðustu 2 daga þannig að ég kveð í bili og þakka þeim sem koma í heimsókn á síðuna Heiður 


Jæja þá

kemur færsla dagsins ég var að segja í gær að ég myndi reyna að skrifa hér að minsta kosti eina færslu á dag.......ég ætlaði að skrifa í gærkvöldi en ég er í stjórn foreldrafélagsins í leikskólanum hjá Ástu og það var fundur í gærkvöldi ég var lengi að spá í hvort ég ætti að fara en ákvað svo að drífa mig þetta er í fyrsta skipti sem ég fer eitthvað að kvöldi til síðan Hilmar dó ég var ekki lengi rúman  klukkutíma vissi ekki alveg hvernig gekk að koma börnunum í rúmið það hefur ekki alltaf gengið vel og er alltaf verið að reyna að koma einhverri rútínu á börnin.

Ásta fór í 5 ára hópinn í gær og gekk það vel og það var gaman eins og hún sagði hún átti að skrifa stafinn sinn bæði lítinn og stóran það var ekki mikið mál fyrir mína því hún er farin að skrifa nafnið sitt fyrir ári síðan svo teiknaði hún mynd líka og hún var svakalega ánægð með daginn svo á að fara að gera hljómpróf af henni og vænti ég að hún komi vel út úr því hún er svo skír og klár stelpa.

Ég bjó til nýtt albúm sem heitir blómin hans Hilmars við keyptum lítið borð sem verður með myndum og minningum um Himma  þetta borð köllum við Himma borð krakkarnir hafa hjálpað mér að raða á borðið þetta er mest allt hlutir sem vinir og ættingjar hafa komið með til okkar.

Jæja þetta er gott í bili ...þakka þeim sem lesa kveðja Heiður. 

 

 


VEÐRIÐ.

Úfff nú er úti veður vont...........og lang best að vera undir sæng og lesa góða bók eða bara að fá sér pínu blund....en ég ákvað samt að skrifa hér smá því í gær gerði ég ekki neitt hef hugsað mér að reyna að skrifa hér eitthvað á hverjum degi EN það kemur örugglega einhver tíman Wink. Í gær var ég bara svo slöpp og frekar þung og pirruð á öllu þannig að sá dagur fór mest í að liggja með tærnar upp í loft upp í sófa(held að ég hafi legið fyrir daginn í dag líka),í dag er ég miklu betri.

Ég byrjaði daginn á að keyra börnin í skólan þau heppin fengu skutl vegna veðurs annars labba þau alltaf það er svo sem ekki langt að labba en Auður þurfti að mæta í íþróttir og það er frekar langt.

Svo rétt upp úr kl 9 var farið með Ástu í leikskólann hún er að byrja í skólahóp eða 5 ára hóp eins og það heitir og var spennan mikil hún sagði að hún ætti að fara í heimsókn í skólann og lét sko bróðir sinn vita að hún kæmi í skólann í dag ...en það var ekki svoleiðins það átti bara að vera hópavinna í leikskólanum og þegar henn var sagt það í morgun þegar við mættum þá sagði hún bar já mamma eða það ég fer seinna í skólann og þar með var það afgreitt og mamma þú mátt fara heim.

Skrifa vonandi meira á morgunn í síðasta lagi ég set kannski inn smá fæslu um 5 ára hópinn hennar Ástu í kvöld það væri gaman að hafa smá dagbók um það hér.

Kveðja Heiður.

 


Góðan daginn......

Mig langar að byrja á að skrifa um gær daginn, víð fórum til Reykjavíkur fórum fyrst til Ragnheiðar og náðum í diska sem Lofur ætlar að skoða aðeins fyrir okkur fórum næst til Boggu og Lofts en hann tók myndir í jarðaförinni eins og sagði frá á blogginu í gær við vorum aðeins að velta fyrir okkur mynd sem á að vera framan á disknum myndin sem við vorum búin að finna gengur ekki upp svo það er verið að skoða aðrar myndir við sáum líka myndirnar sem hann tók og eru þær rosalega fallegar,við fórum svo upp í kirkjugarð að leiðinu hans Hilmars mér fannst það gott en það er samt stutt í tárin og þau fengu bara að renna leiðið er mjög fallegt og krossinn, við fórum svo til Ragnheiðar og Steinars alltaf gott að koma til þeirra þar voru Hjalti og Aníta við sem var ofsalega gott því hann Hjalli okkar á eftir að takast á við hluti sem eru ekki alveg auðveldir eftir allt sem við höfum gengið í gegnum hann á eftir að taka út smá dóm og eitthvað fleyra er á leiðinni við ræddum þetta öll saman við hann,og hann veit  að við gerum allt sem hægt er til að létta honum þetta, (svona fyrir þá sem ekki vita eiga Ragnheiður og Gísli 3 stráka saman Hilmar,Hjalta og Björn en það var bara Hilmar sem bjó hjá okkur en auðvita hafa hinir komið og verið hjá okkur eins og þeir hafa viljað),mig langar að byðja ykkur sem lesið að hafa hann Hjalta í bænum ykkar.

                                                  Dagurinn í dag.

Það var að vanda vaknað kl 7 til að skóla fólkið mætti á réttum tíma í skólann og vitii menn Ásta Sigríður sem er enn á leikskóla vaknaði líka hennar tími er oftast á milli 8 og 8.30 ok mamman voða glöð að þurfa ekki að vekja hana þennan morguninn hún fékk sér að borða með systkinum sínum og svo var kíkt á sjónvarpið skóla fólkið fór út svona 15 mínútum fyrir 8 þá kom Ástu tími hún var búin að koma sér notalega fyrir í stofunni í rúminu sem Auður sefur í á meðan amma er í heimsókn en vildi hún fá að kúra pínulítið lengur og kveikti ég þá á tölvunni til að hlaða ipod fyrir Auði og auðvita aðeins að kíkja á bloggið jú auðvita gleymdi ég mér og 8.40 hrökk ég upp úppps þarf að gera dömuna klára fyrir leikskóla þá var mín stein sofnið í stofunni  ÆÆÆ þetta átti ekki að gerast Blush en þetta gekk allt vel hún vaknaði og fór í leikskólann um 9,30, en rétt fyrir 9 var hringt úr skólanum og Sverrir eitthvað slappur kvartaði um í maganum og lá bara fram á borðið sitt og vildi bara fá mömmu ég fór og sótti hann ég veit ekki alveg hvað var að hjá honum en hann er allur að hressast.

Þetta er orðið gott að sinni þakka þeim sem lesa kveðja Heiður.

p.s ég þakka allar góðar kveðjur það styrkir okkur mikið. 

 

 


Vonandi er allt komið í lag....í bili.

Í gær kom Gummi vinur okkar og lagaði lagnirnar sem voru bilaðar og setti nýja klósettið á sinn stað mikið er ég fegin að þessi vatns niður er hættur Joyful Gummi sýndi okkur lagnirnar og það er bara þannig að nú verður að skipta um allt undir húsinu þær eru meira og minna fullar af drullu og eru að stíflast, ég sat og var að knúsat við Ástu litlu skottuna í morgunn hún fór að tala um nýja klósettið og ég spurði hana hvort það væri ekki flott þá svaraði hún JÚHÚ mamma það er svona niðursturtari á því(hún meinti að það er takki til að sturta niður) mamma brosti bara og knúsaði sína stelpu ennþá meira.

Í dag ætlum við að skreppa í bæinn við ætlum að fara upp í kirkjugarð að leiðinu hjá Hilmari í dag eru 3 vikur síðan hann dó, síðust daga er ég mikið búin að hugsa um hvernig hann hafi það í nýjum heimi mér var sagt þegar pabbi dó að fólk sem deyr eftir mikil veikindi séu lengi að vakna hinumegin og þess vegna er ég að hugsa þetta hvort hann er vaknaður og hvort hann er búin að hitta Hafþór bróður sinn og alla þá sem tóku á móti honum því ég er full viss um að það voru margir sem tóku á móti stráknum okkar.

Loftur mágur minn ætlar að koma upp í kirkjugarð með okkur í dag hann ætlar að taka myndir af leiðinu hann tók myndir fyrir mig í jarðaförinni og erfidrykkjunni mig langar svo að fá af leiðinu líka hann ætlar svo að setja þetta á disk og prenta mynd að Hilmari framan á diskinn og merkja fallega svo ætlar hann að gera eins fyrir Ragnheiði ég ætla að fara og skoða þetta með honum í dag, Auður er búin að vera hjá Boggu og Lofti að skottast með Ragnhildi dóttir Lofts.

Ég kveð í bili þakka þeim sem lesa.

Kveðja Heiður. 


Jæja nú datt

mér bara eitt máltæki í hug "þegar ein beljan mígut míga þær allar"  það er semsagt komið í ljós að önnur lögn í húsinu hjá okkar er farin í sundur Angry ég er búin að heyra vatns nið inni á stóra klósettinu hjá okkur síðan á þriðjudag og í gærkvöldi kom hann Gummi vinur okkar sem er pípari og ég fór að tala um þetta við hann hann taldi að það væri farin lögn undir húsin því ekki fannst neitt hér inni og kom Gummi aftur áðan jú jú það er allt í sundur undir húsinu hann fór til að athuga hvort væri til eitthvað efni til að laga þetta eða hvort þirfti að fara í Reykjavík til að redda efni svo tókum við eftir að það lekur með klósettinu inni á stóra klósetti og við gátum enganvegin fundið út hvar þessi leki kom en Gummi fann það út að klósettið er sprungið Angry og þess vegna lekur þannig að ástandið er þannig á þessu heimili að bæði klósettin eru bilið  litla búið að vera bilað síðan í vor Gísli ætlar að kaupa nýtt klósett í dag.....

Ég varð nú svo hisssssa þegar ég skoðaið athugasemdir hjá mér í gær að þar hafið Sigga Hilmars (hún er systir Ragnheiðar mömmu Hilmars, Hjalta og Bjössa)  skrifað að ég og synir hennar erum bara mikið skyld og ég með alla mína lesblindu þurfti að lesa þetta 10 sinnuum og kalla á Gísla til að láta hann segja mér að ég væri ekki að lesa neina vitleisu þetta gladdi mig mjög mikið því Haukur Atli sonur Siggu hefur komið og verið hjá okkur fyrst með Bjössa bróðir og svo bara líka sjálfur því hann langaði til þess hann er líka svo svakalega góður strákur og börnin á heimilinu spáð mikið í hvort Haukur sé ekki frændi þeirra úr því að hann væri frændi Bjössa og nú gat ég glöð sagt þeim að Haukur er frændi þeirra líka.

Ég þarf að heyra í Siggu til að fá nánari skíringa á þessum langafa skildleika aðalega langar mig og mömmu að fá að vita hvort Haukur er skildur í móður eða föður ætt mína.

Jæja ég er hætt í bili Kveðja Heiður. 


Nú verð ég að skrifa

hér ég er búin að vera svo þreitt að ég get ekki gert neitt að viti ég sit og glápi út í loftið reyki og derkk kaffi og ef ég geri það ekki ligg ég upp í rúmi en í dag virðist ég vera miklu brattari,  ég ætla að skreppa með henni mömmu í Hafnarfjörð og erindast smá fyrir okkur báðar og það gerir mér bar gott eða eins og hún mamma sagði við frænku mína í síman í gær ég ætla að taka Heiði með mér út á mogun til að viðra hana.

Ég er búin að hugsa svo mikið um alla þá sem komu í jarðaför Hilmars okkar hvað hann átti mikið af fólki sem þótti mjög vænt um hann eins og hann var því það er hlutur sem ég hef í raun ekki alltaf verið alveg viss um en mig langar að byðja ykkur sem lesið að skoða síðu sem móðir hans er með hér er slóð (www.hross.blog.is) veit ekki hvort komi linkur en vona það ef ekki þá er hún blog vinur minn hér til hliðar hún skrifar svo vel og það er líka svo margt þarna sem á erindi við alla að mínu mati eitt blogg sem hún skrifar í gær sem heitir Tilgangurinn er sumum ljós er mjög gott ég veit að það eru margir sem hafa lesið en vil samt benda ykkur á og eins það sem hún skrifar í morgun orðlaus að skoða síðuna hjá Afstöðu ég er svo glöð að það er hugsað líka um þá sem voru með honum fyrir austan.

Þakka þeim sem lásu og það má alveg setja eitthvað í athugasemdir bara rétt til að svala minni forvitni um hverjir koma. 

Kveðja Heiður. 


Dagurinn í dag

var mér erfiður og mig var búið að kvíða mikið fyrir honum í dag var útför Hilmars athöfnin var mjög falleg blómin söngurinn og minningar orðin allt var svo fallegt ég er líka svo þakklát öllu því fólki sem kom og fylgdi honum.

Ég veit ekki alveg hvað ég get sagt meira hér ég er svo tóm og ég er bara orðin þreitt ,ég hef heldur ekki gert það áður að skrifa svona tilfinningar mínar nema á blað ekki svo allir geti lesið en ég vil gera það og ég held að ég hafi þörf fyrir það ég bara kann ekki að koma þessu svona frá mér....en vonandi lærist það.

Ég ætla að hafa þetta gott í kvöld og þakka öllum sem lesa og heimsækja síðuna.

Góða nótt. 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband