Jæja loksins

gef ég mér smá tíma til að skrifa hér dagurinn í gær var alveg hrillilega erfiður þá var hann Hilmar kistulagður guð hvað þetta var erfitt við tókum Auði systir hans með hún ólst svo lengi upp með Hilmari og hún bað um það og fannst okkur það gæti gengið hún var svakalega duglega þessi elska svo eftir athöfnina fórum við heim til Röggu og Steinars og fengum okkur kaffi og smá sykur áður en við lögðum á brautina sem var alveg kærkomið smá auka orka.

Um kvöldið settist ég við tölvuna og fór að skrifa minningar orðum um Hilmar og það var í raun ekki eins erfitt og ég hélt eða var búin að búa til í mínu höfði þetta gekk mjög vel en ég kláraði ekki því að Kristinn langbesti vinur hans kom með foreldrum sínum til okkar og var spjallað lengi mér fannst það mjög gott fyrir okkur öll  hann við kistulagninguna fyrr um daginn og var ég búin að hitta hann þar og bauð ég honum að koma til okkar svo ég gæti gefið honum mynd,ég svaf frekar lítið í nótt og það gerði Auður okkar líka og fór hún ekki í skólann fyrr en kl 10 í morgunn.

Svo í morgunn þegar litla fólkið var farið í leikskóla og skóla fór ég og kláraði minningar orðin um Hilmar lagðist svo upp í rúm og steinlá í 3 klukkutíma hrökk þá upp og rauk framm og sagði Gísli veistu hvað klukkan er hún er að verða 4 og það á eftir að ná í Ástu á leikskólann...en auðvita var hann búin að ná í hana og hún sat inni í stofu og horfði á TV....hehe þetta eru augnablikin sem gera dagana pínu léttari.

Jæja farin að elda mat

takk fyrir kveðja Heiður.



Bloggfærslur 31. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband