Jæja það kom

að því að foreldranir gáfu eftir með að fá ketling á heimilið ég á reyndar eftir að tala við Sollu um að fá ketlinginn...Ragnheiður og Steinar komu til okkar í dag og buðu Auði að koma með sér í Keflavík að skoða ketlingana hjá Sollu  dóttir Röggu og þegar hún kom heim sagði hún maaaaammma ég sá svo sætan ketling hann er svartur og hvítur og hann var einn út í horni og horfði á mig svona(svo lék hún hvernig hann horfði á hana) þetta gerði Hilmar líka einu sinni þegar hann náði í unga í hreyður út í  móa þegar hann var ca 13 ára ég á eftir að tala við Röggu um að fá númerið hjá Sollu og ath hvort við getum fengið hann... það er mikil hamingja hjá unga fólkinu á heimilinu núna Smile Ásta er alveg með allt á hreinu hvað þarf að kaupa fyrir litlu kisuna og búin að telja upp langan lista fyrir mig.

Jæja gott í bili þarf að fara að klára að elda matinn  kveðja Heiður. 


Bloggfærslur 16. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband