Nú verð ég að skrifa

hér ég er búin að vera svo þreitt að ég get ekki gert neitt að viti ég sit og glápi út í loftið reyki og derkk kaffi og ef ég geri það ekki ligg ég upp í rúmi en í dag virðist ég vera miklu brattari,  ég ætla að skreppa með henni mömmu í Hafnarfjörð og erindast smá fyrir okkur báðar og það gerir mér bar gott eða eins og hún mamma sagði við frænku mína í síman í gær ég ætla að taka Heiði með mér út á mogun til að viðra hana.

Ég er búin að hugsa svo mikið um alla þá sem komu í jarðaför Hilmars okkar hvað hann átti mikið af fólki sem þótti mjög vænt um hann eins og hann var því það er hlutur sem ég hef í raun ekki alltaf verið alveg viss um en mig langar að byðja ykkur sem lesið að skoða síðu sem móðir hans er með hér er slóð (www.hross.blog.is) veit ekki hvort komi linkur en vona það ef ekki þá er hún blog vinur minn hér til hliðar hún skrifar svo vel og það er líka svo margt þarna sem á erindi við alla að mínu mati eitt blogg sem hún skrifar í gær sem heitir Tilgangurinn er sumum ljós er mjög gott ég veit að það eru margir sem hafa lesið en vil samt benda ykkur á og eins það sem hún skrifar í morgun orðlaus að skoða síðuna hjá Afstöðu ég er svo glöð að það er hugsað líka um þá sem voru með honum fyrir austan.

Þakka þeim sem lásu og það má alveg setja eitthvað í athugasemdir bara rétt til að svala minni forvitni um hverjir koma. 

Kveðja Heiður. 


Bloggfærslur 6. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband