28.febrúar.

Þá er 28 dagur febrúar runninn upp hér var hann frekar hvítur úti sem þíðir að ég þurfti að moka af bílnumAngryeins og mér finnst það ekki gaman,en dagurinn hefur að mestu farið í að taka þvottahúsið í gegn langar að gera smá breitingar þar áður en nýju tækin verða sett inn hef nú sagt frá því í fyrri fæslum og ætla ekki að tala neitt um það hér meira.

En dagurinn hefur líka farið í að minnast hans pabba hann hefi átt afmæli í dag ef hann hefði verið á lífi  hefði hann haldið upp á 70 ára afmæli sitt pabbi lést 1998,ég hef oft hugsað til hans síða hann Himmi minn dó og hef ég verið þeirra trúa að pabbi hafi tekið á móti afa stráknum sínum í ágúst og er ég jafn trúa í dag að þeir og Eyji bróðir hafa fagnað þessum degi saman í himnaríki elsku kallarnir á himnum ég sakna þeirra alltaf svo mikið.

En annars er ekki mikið í fréttum það gerist svo svaklega lítið þegar maður er að þrífa eitt stykki þvottahús en nú ætla ég að hafa það gott hér við tölvuna í kvöld.

Góðar stundir kæru vinir.

Kveðja Heiður. 


Bloggfærslur 28. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband