26.9.2007 | 10:36
Sverrir
Breiðfjörð var að meiða sig...sem er eitthvað sem gerist reglulega hjá mínum manni hann kom heim rétt fyrir kvöldmat í gærkvöldi ég að klára að elda kvöldmatinn mamma ég steig á nagla...og ég sagði strax Sverrir var ég ekki búin að banna þér að vera niður á byggingasvæði...(það er verið að byggja blokk hér rétt fyrir neðan okkar hverfi) mamma ég var ekki á byggingasvæðinu sagði hann og var kvass...ég var úti í móa og þessi naglaspíta líka og ég sá hana ekki sagði sverrir....jæja ok mamma skoðar þetta jú það er sár og ég hreinsaði þetta eins og ég gat og setti plástur hann var mjög aumur í gærkvöldi og þurfti mikið að láta vorkenna sér en svo þegar hann vaknar í morgunn fann hann svo til að mér þótti rétt að láta kíkja á þetta og við fórum upp á heilsugæslu hann fékk umbúðir og krem ekki var sjánleg nein sýking núna en ég á að fylgjast vel með þessu og setja nýtt krem og umbúðir svo fór litli maðurinn í skólan og mamma sækir á hann þegar skólinn er búin...
Kveðja Heiður.
Athugasemdir
Æi litli hrakfallabálkurinn sem hann Breiðfjörð er.......
Vonandi fær hann ekki sýkingu í þetta.
Skrítið..hann er alltaf að meiða sig á fótunum!!! .....er hann svona mikill flækjufótur?
haha heyrumst fljótt
Ásta Björk Hermannsdóttir, 26.9.2007 kl. 11:46
Halló Heiður.
Frábært að rekast á síðuna þína ég er bara endalaust að rekast á R-nes fólk um þessar mundir.
Kíkji betur á síðuna þína um helgina.
Hafðu það gott... Og ég vona að þú munir eftir mér
Kveðja Hulla
Hulla (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 20:03
Sæl Heiður og hvað ég kannast við þetta með stráka hehe það er svo mikið hægt að gera ef maður er strákur í grindó og dagurinn dugar ekki til að komast yfir alltsamann sem maður sér kveðja úr sveitinni kveðja Eva og fj
Eva Björk (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 13:22
Já Hulla ég man vel eftir þér og rosalega er gaman að R-nesinga kíki við endilega gerðu vart við þig.
Hehe já Eva það er hann er líka mjög fúll að ekki er veðrið hagstætt fyrir hann að vera úti með sár og umbúðir á fætinu....rok og rigning
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 27.9.2007 kl. 15:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.