18.10.2007 | 10:47
Jæja ég var
búin að ákveða að skrifa fæslu hér í gær en alltaf þegar ég ætlaði í það truflaði eitthvað en nú er ég hér og ætla að skrifa hér.
Það er mikið um að vera hjá börnunum í dag og á morgunn Auður er í samræmdum prófum í íslenku í dag og stærðfræði á morgunn hún hefur verið frekar kvíðin fyrir þessu en ég veit að hún gerir sitt besta og skólinn er búin að gera allt til að auðvelda henni þetta hún fór allavega glöð í morgunn sem gerir vonir mínar meiri um að allt gangi vel hjá henni.
Það er ekki hefðbundin skóli hjá Sverri því 3 bekkur lánar stofurnar sínar fyrir þessi próf hann fór í staðin í rútu og lá leiðin til Reykjavíkur að skoða Alþingishúsið og Austurvöll svo fór hann með brauð í poka og ætla þau að gefa öndunum brauð svo á að enda á að fara á Pizza Hut á Sprengisandi og fá sér að borða áður en lagt verður af stað heim hann hlakkaði mikið til að fara,svo á morgunn fer hann að skoða nýja olgelið(orgelið) í Grindavíkurkirkju og svo verður farið í þrumuna sem er félagsmiðstöðin og gert eitthvað skemmtilegt ég set hér eitthvað um þetta ferðalag hans hér í fæslu fyrir þá sem vilja lesa.
Svo er það prinsessan á bænum hún Ásta hún er leikskólanum og er í skólahóp krakkarnir úr skólanum komu til þeirra um daginn og það fannst henni mjög gaman því flestir vinir hennar fóru í skólann í haust og hafði hún mikið að segja eftir þá heimsókn.
Hann Eyjólfur litli frændi kom í heimsókn í gær til að skoða Sokk mikið hafði frænka gaman af honum það ískraði bara í honum af kátínu þegar hann sá kisuna og svo skreið hann á eftir honum um allt undir borð og allan pakkan hann er svo yndislegur frænku strákur.
Svo kemur hér smá Sokka fæsla hann sokkur er alveg einstaklega skemmtilegur og nú erm við aðeins farin að sjá þann karakter sem hann hefur að geyma það er mjög mikill leikur í honum og finnst honum mjög gott að borða hann sest stundum fyrir farman dallinn sinn og bíður eins og stytta eftir að settur er matur í dallinn hann er mjög duglegur að fara í kassan og gera sínar þarfir sínar þar og er ég mjög ánægð með það,svo er það eitt sem hann gerir oft á kvöldin þegar börnin eru komin inn í rúm og allt orðið rólegt þá sit ég hér í tölvunni og þá kemur hann og vill komast upp á borðið hann legst fyrir framan skjáinn og sefur hér hjá mér Gísli vill meina að honum finnist gott að vera hjá músinni mér finnst hann alveg yndislegur og gefur okkur mikið sem ekki veitti af.
En jæja þetta er gott í bili gaman að lesa frá ykkur kommentin og endilega gerið vart við ykkur þar eða í gestabók.
Muna svo eftir ljósunum hans Hilmars linkur hér til hliðar.
Athugasemdir
híhí kisi litli vill bara athyglina. Ætli hann eigi ekki fjótlega eftir að uppgötva að það ber góða raun að leggjast bara á lyklaborðið hjá þér
Dísa Dóra, 18.10.2007 kl. 12:21
Hehe Dísa hann er búin að prufa að stíga á lykklaborðið ..
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 18.10.2007 kl. 14:58
Vonandi gengum börnum vel við það sem þau eru að fást við, ég hef fulla trú á Auði. Hún er dugleg. Það hefur nú verið gaman hjá Sverri að komast í smá ferðalag. Ásta litla, alveg að fara í skóla...almáttugur...tíminn líður hratt.
Takk fyrir góðar kveðjur til mín í gær og alla aðra daga.
Ég var að senda þér e mail
Ragnheiður , 18.10.2007 kl. 15:00
Já Auði gekk vel eftir því sem hún segir og þetta var ekki eins mikið má og hún hélt,Sverrir var alveg alsæll með ferðina og hann sagðist hafa séð sætið sem alþingi mennirnir sytja svo borðaði hann pizzu ekki leiðinlegt fyrir minn mann,já litla barnið mitt er að fara í skóla.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 18.10.2007 kl. 16:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.