18.1.2008 | 11:48
14 janúar 2008
Góðan daginn...enn snjóar í Grindavíkinni það er alveg svakalega mikið af snjó hér og hefði ég aldrey trúað það það gæti komið jafn mikil snjór á sléttlendi og raun ber vitni,hér eru snjómoksturtæki út um allt eru þeir farnir að keyra snjónum út í sjó,tíndi bíllinn (umtalaður vinnubíll í fyrri fæslu)er komin í ljós hér kom vinur okkar í gærkvöldi með sjómoksturtæki og hreynsaði úr innkeyrslunni og reyndi að skafa frá bílnum eins og hægt var svo mokaði Gísli frá bílnum og kom honum út á götu set 2 myndi til gamans fyrir ykkur.
Hér er vinnubíllinn alveg að koma í ljós.
Hér yfirgefur svo moksturstækið eftir vel unnið vek.
En þó að mikið sé um snjó hér þá er daglega lífið líka við lífi og er allt að komast í réttar skorður börnin komin í leikskóla og skóla og ég er komin á fullt í viðtalsmeðferðina mína hún hefur gengið mjög vel og finn ég alveg mun en er enn auðvita að upplifa erfiða daga,en það er eitt sem ég hef ekki talað um hér það er skólinn ég á 2 börn þar og eru þau bæði þannig stödd í skólanum að þau þurfa stuðning vegna námsins og það er þannig að þau eru alls ekki að fá það sem þau þurfa og er það að plaga mig mikið þessa daga og til að gera langa sögu stutta fór ég að tala um þetta í gær þegar ég var í viðtalinu það er þannig að það verður að koma til hjálp til að ég nái meiri árangri sjálf ég er orðin svo lang þreitt á að berjast við skólann í 10 ár því þegar Himmi var hér í skóla var ég líka að berjast við að hann fengi hjálp sem hann þurfti,og er það þannig núna að búið er að tala við fólk sem vinnur við að aðstoða foreldra við að fá þá hjálp sem börn þurfa í skólum og vona ég að eitthvað gerist núna ...ég er pínulítið vongóð núna ég segi betur frá þegar ég veitbetur hvað verður gert.
En jæja þetta er orðið gott í dag vona að allir eigi góðan dag.
Kveðja Heiður.
PS það gæti verið að gestur nr 20,000 ditti inn í dag og gaman væri að vita hver það væri....
Athugasemdir
19249 hérna. Þú barðist alla tíð fyrir hann Himma og gerðir svo sannarlega það sem hægt var fyrir hann. Vonandi lagast þetta hjá skólanum og verður betra.
Ragnheiður , 18.1.2008 kl. 11:51
19263.
Góða helgi til ykkar í snjónum.
Hulla (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 12:29
Já Ragga ég held að ég hafi gert allt sem ég gat fyrir Himma hann átti það líka skilið hann var svo góður strákur. Ég vona að þetta dugi með skólann fyrir þau.
Takk Hulla sömuleiðins.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 18.1.2008 kl. 14:07
Já þetta er erfitt þegar að manni fynst eins og það sé ekki hlustað á mann í skólanum (kannast við það) en við skulum krossa fingur og vona að það sé verið að gera eitthvað núna.. Annars er bara að halda áfram að berjast..koss og knús Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 18.1.2008 kl. 19:46
Já það er alveg rétt Ally mér finnst ég bara búin að tuða svo lengi en ég hef trú á að það sem komið er í gang gæti virkað eða ég ætla að trúa því þangað til ég sé eitthvað annað...svo finnst mér þeð ekki eiga að vera hlutverk foreldra að vera tuða í kennurum í skólanum...en það verður aldrey öðruvísi..því miður.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 18.1.2008 kl. 23:00
19340....held áfram að reyna
Ragnheiður , 18.1.2008 kl. 23:46
19430
Það er erfitt að berjast við skólakerfið, annars hélt ég að það hefði lagast síðan mínir og Himmi voru í grunnskólanum. Vona að það fari að ganga hjá þér svo þú getir fengið þína hjálp.
Öfunda ykkur í Grindavíkinni ekkert smá, óskaði þess strax að við hérna á höfuðborgarsvæðinu fengjum sama skammt. Fattaði bara ekki að biðja um sama skammt af snjó per fm. Við höfum ekki fengið almennilegan snjóavetur síðan einhvern tímann á síðustu öld.
Kidda (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 12:09
Já Kidda það er heilt helvíti að besjast við þetta skólkerfi....mér finnst það ekki hafa lagst mikið frá því Himmi var í skóla.
Það væri óskandi að það væri hægt að senda snjó svona framm og til baka eftir óskum.
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 20.1.2008 kl. 13:06
19519, kíki á hverjum degi núna, ætla að vera nr. 20000
Rúna (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.