Annasamur dagur að kveldi komin....

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér í dag hann byrjaði á að sinna skildustörfum...það er að koma stóru börnunum í skólann og svo með litla skottið í leikskólann ég fór svo aðeins að láta laga mig til í andlitinu...Winksvo kom smá hlé eða þangað til sonurinn kom heim úr skólanum kl 13,og svo kl 14 dag átti ég að mæta upp á skólaskrifstofu og hitta sálfræðinginn hjá skólanum EN þegar ég mætti á tilsettum tíma er mér tilkynnt að hann væri að vinna upp í skóla og gæti því ekki hitt mig.........vússssss það fauk í mig ég vildi fá að vita afhverju  ég var ekki látin vita og svarið var að hún var að átta sig á að hún næði þessu ekki..tek það framm að skólaskrifstofa og skóli  eru í sama húsi vá hvað ég varð reið og helti mér yfir konuna sem er þarna á skólaskrifstofunni þetta er kona sem vann lengi við skólann og veit mjög vel um öll okkar mál ég átti sem mest samskipti við hana þegar Himmi var í skólanum hér og ég sagði líka við hana að ég væri orðin svo þreitt á þessum skóla hér maður þirfti að berjast fyri barni eftir barni og það skiptir engu og sagði svo að ég væri búin að berjast við þennan skóla í heil 10 ár og það hliti að vera komið að mér í goggunarröðinni..og ég fór með eitt loforð um að þessi sálfræðingur myndi hafa samband við mig á næstu dögum...og það er líka eins gott að hún geri það ÞVÍ ÞAÐ ER ORÐIÐ ÞANNIG AÐ ÉG ER AÐ GEFAST UPP á þessu endalausa tuði og stappi um sömuhlutina.Dagurinn endaði svo með að litla prinessna á bænum fór í fimmleika..jæja ég er búin að pústa nóg um þetta í bili...þetta pirrar mig bar svo mikið.

Að lokum langar mig að sýna ykkur myndir af nýja húsinu hans sokks hún Auður var svo sæt að búa til hús fyrir hann úr pappakassa og þar sefur hann upp á þvottavél.

Sokkur og húsið hans 001

 

 

 

 

 

 

 

 

Flottur í húsinu sínu.

Kveðja Heiður. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

Elsku snúlla ekki gefast upp barnana vegna..Ef að þú gefst upp hvað þá???Látu meira í þér heira og ég efast ekkert um að þú sért búinn að láta mikið í þér heira Fara með þetta í blöðinn þenan hneikslunar skóla og svona eða eitthvað.En ekki gefast upp..Knús og styrkur kv Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 01:10

2 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Takk fyrir Valgeir og Ally...ég er að fara með krakkana til læknisins þeirra í dag og ætla að byðja hana um að vita hvort hún geti gert eitthvað fyrir okkur varðandi skólann...mig langar svo að minnast á að ég er ekki að gefast upp á neinu öðru en að berjast endalaust við skólann ...ég er að gesfast upp á þessum skóla hér í þessu bæjarfélagi sem ég bý í og þess vegna hefur það komið upp í hugan hvort væri betra að flytja eitthvað annað sem von er á að hægt verði að hjálpa börnunum...en auðvita er það rask og ekki gott fyrir þau félagslega,ég ætla að taka þessa lotu einu sinni enn og sjá hvort þetta fólk sem sérhæfir sig í að hjálpa fólki í svona vandræðum eins og ég er í dag getur gert fyrir mig..... 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 31.1.2008 kl. 08:18

3 Smámynd: Lilja Björk Birgisdóttir

Kvitt fyrir mig.  Skil vel hvað þú ert að brasast í sambandi við skóla og þeirra kerfi.  Ég hef oft hugsað um að flytja og skipta um skóla en næ svo að toga mig niður á jörðina og fer að hugsa um raskið sem verður hjá ormunum.

Kv Lilja Björk sem er að drepast úr kulda.

Lilja Björk Birgisdóttir, 1.2.2008 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband