4.2.2008 | 17:28
BJARTARI DAGAR
Komst að því að allir dagar eru hreinlega ekki eins.....eins og ég sagði frá í fyrri fæslu átti ég frekar fúllt samtal við þennan skólasálfræðing á föstudaginn og varð frekar heitt í hamsi en svo fékk ég símtal frá Sjónarhóli sem er að fara inn í mál barnana og ætlar að aðstoða mig við að fá þeim rétti framgengt sem börnin eiga og jú konan sem sér um mín mál hringdi í sálfræðinginn sem starfar hér á heilsugæslustöðinni og hann hringir í mig á næstu dögum og ætlar hann að tala við Auði og athuga hvað er hægt að gera fyrir hana ...já ég er búin að segja það OFT að þessi kona á sjónarhóli er engill í dulargerfi hún er frábær og tekur allt af mér og reddar því sem þarf og ég held bara áfram að gera það ég á að gera hugsa um börn og heimili meðan hún vinnur verkin svo mæti ég bara á fundi þegar þess er óskað...þannig að í dag er ég mun hressari en fyrir helgi.
Er farin að hugsa fyrir afmælisveislu barnana og er stefnan tekin á næsta sunnudag ég held bara eitt afmæli fyrir þau öll í staðin fyrir að halda eitt í desember,annað í janúar og þriðja í febrúar ...þetta heitir skipulag að dreifa þessu ekki yfir árið....eða eins og einhver sagði við mig einu sinn að það sé greinilega bara fengitími einu sinni á ári hjá okkur...eins og hjá ????.
Jæja gott í dag vonandi eiga allir góðan dag...kveðja Heiður.
Athugasemdir
Þetta er yndislegt fólk þarna á Sjónarhól og hefur gaman að vinnunni sinni :) Það er gott að þú ert hressari og tilbúin í afmælis stúss, var í því í síðustu viku og verður ekki annað fyrr en í mai :)
Guðborg Eyjólfsdóttir, 4.2.2008 kl. 20:14
Takk fyrir ég hef mikla trúa á sjónarhóli
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 5.2.2008 kl. 18:24
Það er frábært að þú ert að fá aðstoð þaðan, slagurinn hefur staðið nógu lengi. Það er ljóst.
Knús í bæinn
Ragnheiður , 5.2.2008 kl. 21:19
Jæja dúllan mín það er gott að þér líður betur og sko mig ég kvittaði haha
sé þig þegar snjóa leysir
Ásta Björk Hermannsdóttir, 6.2.2008 kl. 14:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.