Dagur að kveldi komin.........

Jæja þá er þessi dagur að kveldi komin...ég er nokkuð ánægð þó mér hafi kviðið fyrir þessum degi í dag eru 6 mánuðir liðnir frá því að við gengum í gegnum erfiðasta dag í lífi okkar hér þegar presturinn kom hér og tilkynnti að Hilmar væri dáinn,við fórum í bæinn í dag og fórum í kirkjugarðinn til hans mér finnst það pínu erfitt enn þá kemur svo mikill söknuður ég hef auðvita hugsað um þennan dag fyrir 6 mánuðum en hugsaði kannski meira um það í gær því þá var minna að gera en í dag...ég er pínulítið feginn að hlutirnir urðu þannig að það var frekar mikið að gera í dag og hafði kannski ekki eins mikinn tíma til að hugsa um þennan dag fyrir 6 mánuðum en ef ég hefði bara verið heima.

En dagurinn byrjaði á því að við Auður fórum og hittum sálfræðing (á heilsugæslustöðinni)sem ætlar að reyna að hjálpa Auði og svona í stuttumáli er staða Auðar þannig að hún getur ekki talað um Hilmar bróður sinn og að hann sé dainn öðruvísi en að gráta og henni líður ýlla yfir þessu og er talin full ástæða til að hjálpa henni að komast í gegnum þetta.. Himmi var hennar uppáhalds bróðir og hún þekkti hann vel og Himmi var líka svo ROSALEGA góður vð Auði...þau elskuðu hvort annað mikið,ég hef mikla trú á þessum sálfræðing og að hann geti hjálpað henni.

En svo þegar við komum út í bíl fengum við sms og jú það fæddist lítill eða bara stór frændi í morgunn Ásta og Einar eignuðust annan strák og var hanan hvorki meira en 19 merkur og 55 CM risa stór við Gísli fórum og kíktum á þau og hittum líka STÓRA bróðurinn og ömmu Boggu og Loft afa og Sverrir Pétur allir að skoða auðvita voru teknar myndir og læt ég eina fylgja hér fyrir neðan.

Litli Einarson og fleyra 057

 

 

 

 

 

 

 

 

Prins Einarsson.

Í dag kl 15 hittust svo saman í Sjónarhól og ræddu mál barnana okkar þetta voru læknirinn þeirra kennarar félagsþjónustan konan sem ég hitti vikulega og  fulltrúi frá Sjónarhól svo við foreldrar alls 10 manns og voru ræddar leiðir til að hjálpa þeim í skólanum og kemur til greyna að fá félagslega aðstoð fyrir þau ég er nokkuð sátt eftir þennan fund og kannski pínu bjartsýn en ég veit ekki enn hvað félagsþjónustan getur gert  fyrir okkur en hugmyndir komu upp sem verða skoðaðar það er ýmislegt sem ég ætla að gera og svo verðu ýmislegt sem skólinn ætlar líka að gera sem verður gott fyrir þau en nokkuð haldið í það sem er verið að gera líka núna í skólanum líka til að þau finni ekki eins mikið fyrir breitingum,svo eigum við að hitta læknirinn á fimmtudaginn og þá gætu orðið lyfja breitingar hjá Auði að minsta kosti,ég vona að þetta geti orðið til einhvers góðs fyrir okkur öll og hefur í rauninni margt gerst bara á síðustu dögum eða frá því að ég lét þessi mál í hendur þeirra sem kunna að fjalla um svona mál þá meina ég þessa góða fólks sem vinnur á Sjónarhóli.

En jæja ég held að ég sé búin að skrifa nóg í bili og er frekar þreitt eftir anna saman dag og býð Góða nótt....

En eitt að lokum við skoðuðum þvottavélar í leiðinni og JÚ húsmóðirnn er búin að finna vélina sem hana langar í en auðvita er hún uppseld og er væntanleg í þarnæstu viku og bíð ég bara "róleg" Cool afþví ég er svo róleg...hehehSmile

Kveðja Heiður "rólega" 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Auðvitað á hún bágt þessi elska, þeim þótti svo vænt um hvort annað...

Hvaða vél langar þig í ?

Ragnheiður , 19.2.2008 kl. 23:51

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Til hamingju með litla frændann

Guðborg Eyjólfsdóttir, 20.2.2008 kl. 00:28

3 Smámynd: Dísa Dóra

Vá stór og flottur frændi sem við höfum eignast þarna

Dísa Dóra, 20.2.2008 kl. 09:01

4 Smámynd: Hulla Dan

Elsku Heiður mín.

Ég held að sé ekkert skelfilegra í heiminum, en að missa barnið sitt. Og fyrir börn að missa sistkyni sín. Ég hef sem betur fer ekki upplifað slíka sorg en verið nálægt því...

Ég sendi alla mína samúð til ykkar og kveiki á kertum fyrir ykkur á hverju einasta kvöldi.

Hafðu það sem allra best og vona að allt eigi eftir að ganga að óskum með börnin ykkar. 

Hulla Dan, 20.2.2008 kl. 09:03

5 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Ragga Mig langar í nýjustu týpuna af AEG ekkert annað.

Takk fyrir Guðborg og Dísa hann er svo svakalega flottur strákur.

Já Hulla ég get alveg sagt það að það er ekkert eins erfitt og að missa barnið sitt og Hilmar var mjög góður strákur en stundum gat hann ekki alveg sýnt það og hann elskaði sína fjölskyldu alla og öllum þótti vænt um hann hann var bara þannig stákur þó hann hafi stundum tekið á þolið hjá mömmum og pöbbum svo var hann svo góður við systkini sín þau voru honum svo mikið og hann var líka svo stolltur af þeim. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 20.2.2008 kl. 10:31

6 Smámynd: Ragnheiður

AEG er það ekki sama og ég er með ? Fínar vélar en þvo ekki eins vel og gamla mín hehehe. Hún lenti bara í slysi og er útí skúr greyið. Það var Eumenina, sambyggð með þurrkara.

Sammála því sem þú segir þarna um hann Himma okkar, hann gat stundum ekki verið nógu góður en hlýjuna stafaði frá honum langar leiðir. Og litlu krakkana elskaði hann, það vitum við.

Ragnheiður , 20.2.2008 kl. 12:45

7 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

"RÓLEGA"??????????????????

YEAH RIGHT Heiður..þú ert sko róleg...alltaf jólin hjá þér???

þú mátt alveg halda það elskan

cya later 

Ásta Björk Hermannsdóttir, 20.2.2008 kl. 16:34

8 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Takk Ásta eskan mín þú ert snillingur tókst eftir gríninu...hehe

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 20.2.2008 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband