23.2.2008 | 13:31
Árshátið þvottavél og
Jæja þá má segja að það sé komin tími til að skrifa smá á bloggið....
Við erum að fara á árshátíð í kvöld með vinnunni hjá Gísla þannig að ég skellti mér í að láta laga hárlokkana í gær og er enginn rót niður á axlir úúff hvað ég er feginn og svo Björn barnapía er komin í hús sem er gott hann skrapp aðeins með vinum sínum í gærkvöldi og var ekki komin þegar gengið var til náða hér í gærkvöldi og voru sumir karlmenn að spá í hvort hann hafi gleymt að hann hafi ætlað að passa eða að hafa húsið opið og hann farin að sofa en auðvita skilaði hann sér í morgunn hress og kátur og spilar WOW hér núna....
Svo þegar minn maður kom heim úr vinnunni í gær rétti hann mér nótu og jú þessi elska fór og keypti nýja þvottavél og þurkara líka svo ég er að fá allt nýtt í þvottahúsið þetta kemur allt í næstu eða þarnæstu viku eins og ég sagði í síðustu fæslu er þvottavélin uppseld og er væntaleg í næstu viku en næsta vika eru 5 virkir dagar og ég veit ekki hvenær þetta fer í flutningabílinn til Grindavíkur og nú er það næsta mig langar að breita aðeins til í þvottahúsinu en þá þarf auðvita pípara og er ég að vinna í því að ná í Gumma til að skoða hvort þetta er mikið mál ef þetta gengur eftir fæ ég borð í þvottahúsið það er svakalega gott.
Annars er allt gott að frétta héðan man ekki eftir fleyru í bili en þangað til bless Heiður.
Athugasemdir
Til hamingju með þvottavélina og þurrkarann. Ég fékk bréf sem ég þarf að sýna ykkur við tækifæri. Láttu Bangsann passa, hann hefur gott af því.
Góða skemmtun í kvöld
Ragnheiður , 23.2.2008 kl. 14:08
Takk fyrir Ragga,við kíkjum á þetta bréf hjá þér,krökkunum hlakkar til að Bjössi passi en sverrir hafði bara pínu áhyggjur af hvað Bjössi ætlaði að gefa honum að borða en var sáttur þegar hann vissi að það yrði bara pönntuð pizza...hehe
Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 23.2.2008 kl. 15:05
Góða skemmtun í kvöld
Dísa Dóra, 23.2.2008 kl. 15:21
Góða skemmtun og til hamingju með þvottavélina og þurrkarann :) alltaf gaman að fá ný tæki þegar þau gömlu eru úr sér gengin
Guðborg Eyjólfsdóttir, 23.2.2008 kl. 15:33
Til lukku með tækin og góða skemmtun
Hulla Dan, 23.2.2008 kl. 17:10
frábært að það sé gott að frétta og til lukku með þvottavélina og þurkaran og vonandi kemur þetta í hús sem fyrst koss og knús Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 24.2.2008 kl. 13:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.