Föstudagur.

Góðan daginn hér.

Í gær fórum við í Keflavíkina og þurftum að fara í Húsasmiðjuna og ná okkur í meira til að bera á grindverkið þegar við vorum búin að gera það var upplagt að skreppa í Bónus og ná í eitthvað í matinn svakalega gott ef maður kemst barnlaus svo skruppum við í hjólabúðina(oh alltaf í hjólabúðum núna) nei það þurfti að kaupa nýjan hjálm á Auði hún tíndi sínum,,,hvernig sem það er hægt en við fengum fínan hjálm og auðvita er ekki hægt að sleppa litlu börnunum svo Ásta fékk körfu og stól fyrir dúkkuna og Sverrir standara og allir svaka sáttir,en svo datt okkur í hug að kíkja í tölvubúð okkur er búið að langa að kaupa fartölvu og flakkara lengi og erum búin að vera lengi á leiðinni í þann leiðangur og jú það var keypt talva og flakkari þá vantar ekki þessi tæki á þetta heimili það er mjög sniðugt að hafa þetta með þegar við erum að ferðast þá er hægt að horfa á mynd ef veðrið er leiðinlegt ferðuðumst með vinum okkar í fyrra sumar sem gerðu það og jú þetta er sniðugt.

En svo endað á að skutla Auði í Njarðvík í helgar gistingu og var hún rosalega spennt mátti mæta með sundföt og fara með Hilmari í ungbarnasund ekki leiðinlegt það var æðislegt að kíkja á litla manninn sem var svo vel vakandi og rosalega skemmtilegur.

Ragga hefur verið með fæslu um að stofna samtök þeirra sem mist hafa í sjálfsvígum að mínu mati er það nauðsynlegt að stofna svona þið getið skoðað þetta hún er efsti bloggvinur hér til hliðar. 

Jæja það er ekki meira í bili best að reyna að taka aðeins til því hinn helmingurinn er úti að bera á grindverkið kveð að sinni  bless Heiður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Jújú mikið rétt að þetta kom að góðum notum á Vopnafirði í fyrra þegar börnin þín voru leið í rigningunni......ég mun sko hiklaust taka þetta með aftur í sumar...vona að þið komið með í einhverja ferðina

Ásta Björk Hermannsdóttir, 3.5.2008 kl. 23:05

2 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Ásta mín erum við ekki að fara að ferðast saman í sumar ekki spurning

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 4.5.2008 kl. 09:54

3 Smámynd: Hulla Dan

Mikið held ég að sé þörf á svona amtökum, gerði bara ráð fyrir að þau væru til nú þegar.

Hvað í ósköpunum er flakkari??? Ég er alveg græn

Kveðja úr danskri sumarblíðu

Hulla Dan, 6.5.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Hulla

Inn á flakkara er hægt að ná í myndir td af netinu og tengja svo í sjónvarp eða tölvu og horfa svo er hægt að flakka framm og til baka með þetta

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 6.5.2008 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband