Gæti verið að það værir gestur hér.

Góðan daginn.

Mig langar að segja ykkur frá dularfullu útvarpi...en þannig er að ég er með lítið útvarp í eldhúsinu hjá mér og svo fór ég að taka eftir því fyrir svona hálfum mánuði að útvarpið fer alltaf í gang klukkan 11.36 (eftir klukkunni í tölvunni) ég var ekkert að velta þessu fyrir mér neitt sérstaklega en hugsað er útvarpið orðið sjálfstætt en svo gerist það fyrir svoan 3 til 4 dögum að útvaripð fer að taka upp á því að slökkva aftur á sér klukkan 12.36 (enn eftir tölvunni) og þá fór ég aðeins að velta þessu fyrir mér hvaða sjálfstæða útvarp ég væri með í eldhúsinu W00t..en mér datt eitt í hug sennilega er einhverjum sem finnst ég ætti að fylgjast betur með fréttum því þetta er jú svona ca á frétta tímanum á Bylgjunni....langaði bara að deila þessu með ykkur.

En svona af heimilislífinu eru tveir sjúklingar Auður er búin að vera heima með hálsbólgu og hita síðan á mánudag og Sverrir fékk einhvern svima hér rétt áður en hann átti að leggja af stað í skólann í morgunn og ég vildi ekki senda hann annars finnst mér hann eitthvað slappur en ég ætla að sjá til hvað margir fara í skólann á morgunn..annars er allt við það sama ég er búin að vera frekar löt við allt alveg sama hvað það heitir og þess vegna ekki skrifaði mikið en hér fáið þið eina dularfulla sögu af útvarpi....Whistling.

Og afþví ég er löt þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili en dett inn ef mér dettur eitthvað í hug.

Vona svo að allir eigi góðan dag það sem eftir lifir.....lifið heil. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Melrakki

Hehehe get alveg séð þetta fyrir mér ..Frú Heiður sitja fyrir framan tölvuna rétt fyrir hádegi með andaglas að reyna að fá einhvern botn í hvað er í gangi heheh.

Valdimar Melrakki, 7.5.2008 kl. 17:26

2 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

já er það ekki  það væri kannski að prufa að sappa græjuna valdimar

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 7.5.2008 kl. 17:51

3 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe veit nú um einn hrekkjalóm sem gæti átt til með að stríða aðeins mömmu sinni svona..hehe

Knús á lösnu krakkana og ykkur hin

Ragnheiður , 8.5.2008 kl. 00:04

4 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Já Ragga mér hefur líka dottið einn ákveðin í hug....og skemmtir sér vel við að sjá á manni svipinn þegar kviknar á útvarpinu.

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 8.5.2008 kl. 07:59

5 Smámynd: Hulla Dan

Alltaf gaman af svona útvörpum.
Græurnar mínar tóku upp á þessu í fyrra sumar og spiluðu þá fyrir mig þann disk sem varí tækjinu, á hæðsta styrk.
Ég komst svo að því nokkru seinna að þetta er svo askoti flottar græjur að það er vekjari í þeim. Það vissi ég ekki þegar ég keypti það. Alltaf gott að fá svona kaupauka, þó það geti verið pínu hræðilegt til að byrja með.
Pissaði s.s næstum á mig fyrst þegar þetta byrjaði.

Knús á þig og hafðu það gott snúlla.

Hulla Dan, 8.5.2008 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband