16.6.2008 | 14:06
Ný vika.
Jæja þá er komin ný vika nýr dagur og hvað á að gera í dag ? það er góð spurning .
SMÁ VIÐBÓT HÉR.
Ég ætla að setja hér efst smá viðbót,ég var að fá borða efst á síðuna mín litlu englana mína rosalega er ég ánægð með þetta hann Gunnar http://rannug.blog.is/blog/rannug/gerði þetta fyrir mig og setti síðuna mína á Topplistann þakka þér kærlega fyrir Gunnar þetta er rosalega flott,var búin að reyna þetta oft en þetta koma allt bjagað enda er ég ekki tölvugúrú.....
Ég er afskaplega fegin að ekkert af mínum ská börnunum fóru á bíladaga þetta árið það gekk ekki mjög vel fyrir ári síðan svo ég er kampa kát með að allir voru heima.
Svo las ég alveg þá bestu frétt hjá Röggu í gær Hjalli fær að taka út í samfélagsþjónustu ég get ekki líst því hvað við Gísli vorum ánægð að það sé komið á hreint,veit ekki hvernig ég hefði tekið því ef hann hefði þurft að fara inn...jeminn get bara ekki hugsað um það.
En svo er stóra stelpan mín komin heim og verður í viku æj það var svo gott að sjá hana þessa elskuég þarf bara að venjast því að hún sé ekki heima í heila viku en auðvita heyrði ég í henni bæði sms msn og í síma,svo var ég búin að lofa henni að ef vel gengi í prófunum og hún myndi leggja sig alla framm þá mætti hún fara í plokkun á augabrúnum svo í hádeginu fór hún þegar hún var búina hringdi hún og sagði...mamma veistu hvað þetta var vont...ég sagðist alveg vita það en vildi ekki segja henni það svo nú er hún svaka pæja.
Ég er nú öll að jafna mig á brunasvæðum er búin með rúmlega 1/2 túpu að alovera kæli geli svo þetta er allt í áttina en núna verður sólavörnin notuð óspart....
Hér er svo brunarústirnar langaði svo að eiga mynd og get leift ykkur að sjá líka.
Í kvöld verður kátt í götunni hér hjá mér það á að vera svona götugrill og ætla allir að koma saman við eitt húsið í götunni og grilla saman það verður gaman þetta var hefð hér en hefur ekki verið gert í 3 til 4 ár en svo var ákveðið að prufa að endurvekja þetta og er þetta í fyrsta skipti sem við förum börnunum hlakkar mikið til og ætlauðu ekki út í dag til að misssa ekki af þessu en ég sagði að þeim væri það alveg óhætt því þetta verður ekki fyrr en í kvöld....
Jæja er þetta ekki orðið gott í bili kveð að sinni Heiður.
Athugasemdir
Úff ég kannast við svona brunarústir en hef verið dugleg að passa mig ...rosalega sniðugt svona götupartý...dregur bara nágrannana betur saman og oft verður mikill vinskapur til í svona partýum...skemmtið ykkur bara ofsalega vel í kvöld...hlakka til að heyra frá þér á morgun um gang mál
Ásta Björk Hermannsdóttir, 16.6.2008 kl. 15:10
Rosalegt er að sjá á þér bakið. Ég er nú ekki óvön því að vera svona útlítandi því það má ekki skína sól á mig augnablik án þess að ég brenni til ösku. Það verður örugglega gaman í grillpartíinu í kvöld, sniðugt þegar nágrannar taka sig svona saman.
Helga Magnúsdóttir, 16.6.2008 kl. 15:29
Töff bak Vona að þetta sé ekki vont dúllan mín.
Mikið svakalega eigi þið falleg börn.
Rosa falleg hausmynd
Hafðu það gott í grillpartýinu...
Hulla Dan, 16.6.2008 kl. 16:46
Agalegur bruni kona. Vertu dugleg að bera á.
Og toppurinn á síðunni er flottur.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.6.2008 kl. 19:25
hafðu það sem allra best og batarkveðjur frá okkur,skemmtið ykkur vel í götugrillpartýinu,og svo að endingu,mjög flott mynd af börnunum ykkar
kv gumpurinn
Anna Ágústa Bjarnadóttir, 16.6.2008 kl. 20:29
Flottur borði...
Sammála með Hjaltann okkar, ekkert okkar hefði þolað það að horfa á eftir honum inn..
Takk fyrir að vera þú, hlý og góð.
PS þú hefur brunnið svakalega illa !
Ragnheiður , 16.6.2008 kl. 22:51
Tl hamingju með 17.júní
Hulla Dan, 17.6.2008 kl. 07:02
Vá hvað þú ert rík af fallegum börnum. Vona svo að bakið sé að jafna sig og að þið hafið skemmt ykkur vel í grillpartýinu, rosalega sniðugt.
Gleðilegan 17. júní
Elísabet Sigurðardóttir, 17.6.2008 kl. 07:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.