jæja komin

Heim já hann Sverrir datt þegar hann var að hlaupa ofnaí sundlaugin á leikjanámskeiðinu í dag og fékk gat á hausinn ekki í fyrsta sinn sem þarf að bruna með töffarann á slysó,ég spurði hann afhverju hann hafi ekki komið heim eftir að hann meiddi sig og svarið var....mamma ég harkaði af mér....mér datt bara einn bróðir hans í hug hann gerði það stundum að haka bara af sér þegar hann meiddi sig og það var sama hvað það var lítið eða stórt,við fórum og hittum læknir og hann fékk eitt spor í hausinn.

Sverrir átti svo að mæta í klippingu í hádeginu á morgunn og verður frestun á því hann verður með lubban framm í næstu viku kall anginn..

En stundum er það þannig að maður er heppin Valdimar hringdi og spurði hvort við værum heima og langaði aðeins að kíkja og fá sér kaffi stundum dettur honum þetta í hug frekar en að far heim til sín en hann kom og passaði litlu systir sína á meðan ég fór með Sverrir.

Auður er farin til Ástu í Keflavíkina og eru þær að fara á Patró á morgunn þær ætluðu um daginn en þá varð Ásta að hætta við og á að leggja af stað strax í fyrramálið...Auði hlakkar mikið til að hitta ömmu og svo á hún vinkonur þarna líka sem hana hlakka til að hitta.

En jæja það er ekki meira að sinni kveðja Heiður. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Dóra

Það er nú allt í lagi að vera með smá lubba og sérstaklega ef ástæðan er harkan í manninum

Dísa Dóra, 19.6.2008 kl. 19:24

2 Smámynd: Þóra Björk Magnús

   Hörku drengur sem þú átt þarna

Þóra Björk Magnús, 19.6.2008 kl. 19:50

3 Smámynd: Anna Ágústa Bjarnadóttir

hann leynir á sér hann Sverrir það er mikið í hann spunið

koss og knús til ykkar

kv frá fjölsk 

Anna Ágústa Bjarnadóttir, 19.6.2008 kl. 20:09

4 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Ja hérna hér..ég er ennþá hissi yfir því að hann felldi ekki tár yfir þessu snúllinn þarna..bið að heilsa honum sérstaklega..

og sjáumst í fyrramálið

Ásta Björk Hermannsdóttir, 19.6.2008 kl. 20:34

5 Smámynd: Hulla Dan

Hulla Dan, 20.6.2008 kl. 06:13

6 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Æ dúllan, en hvað hann er duglegur. 

Hafðu góða helgi

Elísabet Sigurðardóttir, 20.6.2008 kl. 12:14

7 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hann verður bara Sverrir hárfagri í viku. Var ekki nafni hans Haraldur frægt hörkutól?

Helga Magnúsdóttir, 20.6.2008 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband