9.12.2008 | 23:43
þegar piparkökur bakast......
Jæja það er allt gott hér bara verið að reyna að koma jólum í húsið og gengur það vel bara annars langaði mér að sýna ykkur myndir frá deginum í dag þá bökuðum ég og börnin piparkökur og það er alltaf bara gaman gott spjall við börnin á meða skorið er út úr deginu...
Sverrir og Ásta að baka.
Duglegur krakkarnir mínir.
Svo kom Auður heim úr skólanum og bakaði líka.
Hér er svo ég að skera út nokkrar.
Hér er svo hluti af afrakstri dagsins.
Svo verður haldið áfram á morgunn og eitthvað bakað pínu meira til að maula yfir þessa hátíðisdaga sem framundan eru.
En svo bara til gamans þá fórum við öll á aðventukvöld á sunnudagskvöld þar var sýndur helgileikur í höndum fermingar barna og var Auður Jósef hér er ein mynd af henni.
Hér er Auður í hlutverki Jósefs.
Eitthvað er stærðin á stöfunum að stríða mér en ég vona að þetta skiljist og sjáist.
Kveðja Heiður og hennar bakara meistarar.
Athugasemdir
Hérastubbur bakarameistari hvað !
Bara flottust...
Ragnheiður , 9.12.2008 kl. 23:50
Dugnaður í ykkur
Hér á bæ nennir enginn að baka -ekki ennþá allavega. Ég ætti kannski bara að panta frá þér 
Kær kveðja til ykkar
Dísa Dóra, 10.12.2008 kl. 00:54
Mar fær þá að kjamsa á einhverju næstu helgi ha?? sko ekki gleyma að ég er að koma í heimsókn af Skríplaskeri til Krimmavíkur
Ásta Björk Hermannsdóttir, 12.12.2008 kl. 10:37
Flottir bakarar á ferð
Það er bara gaman að vera með krökkunum að stússast í svona. 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 12.12.2008 kl. 10:42
gaman að sjá blogg og myndir af ykkur
knús að norðan
Dísa og co
Dísa (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 10:54
Flott hjá þér. Maðurinn minn og sonur hafa bakað á fullu undanfarið á meðan ég hef dundað mér í vinnunni.
Helga Magnúsdóttir, 14.12.2008 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.