Hvernig er þetta með þig

Heiður er ekki komin tími til að blogga ? já ég er EKKI búin að vera mjög ofvirk hér á blogginu en hér kemur eitthvað.

Hér hefur ekki verið bein lognmolla þó bloggið hafi legið niðri og hér skal styklað á stóru,við fórum af stað með fellihýsið um verslunnarmanna helgina og var komið sér fyrir á Apavatni þetta er frábær staður sem er orlfofssvæði Rafiðnarsambands Íslands og vorum við því gestir hans Lofts og Boggu þarna er flott svæði fyrir börnin mikið af leiksvæðum og tækjum og svo er hægt að fara að veiða í vatninu þetta var auðvita allt prufað,svo var auðvita reynt að haga sér eins og alvöru túristi og farið og skoða landið í kring við fórum að Gullfoss og Geysi og svo voru keyptar íslands merktar vörur fyrir börnin Ásta valdi sér víkinga húfu því hún vill meina að hún sé víkingur en sverrir fékk sér derhúfu í fánalitum Auður vildi ekki neitt og sagðist ekki vilja svona fána dót gott og vel svo var farið í sund og veiða það var fengin bátur að láni og Gísli fór með börnin út á Apavatnið og veiða og mamma ætlaði að labba heim og ná í myndavél og taka fullt af myndum og viti menn Gísli var með alla lykla með sér úti á vatninu og ég komst ekki til að ná í myndavélina Smile svo það var gerð tilraum til að taka á síman en það gekk ekki alveg nógu vel svo það eru engar myndir af bátsferð,við komum svo heim á mánudagskvöld og allir glaðir.

Nú svo er búið að fara að kaupa skólatösku fyrir litlu skólamanneskjuna á heimilinu rosalega bleik og flott hún er svo ánægð með hana og sagði við mig mamma ég er pínu montin nema hvað.

Apavatn og fleyra 2008 032

Hér er Ásta með skólatöskuna pínu montin.

Svo á eftir að kaupa allt sem á að fara í töskuna og er stefna tekin í Reykjavíkina í dag til að redda því Ástu er farið að hlakka mikið til að byrja í skólanum og spyr á hverjum degi hvað sé langt þangað til hún fari í skólann,mér kvíður dálítið fyrir að skólinn byrji því ég hef tilfinningu fyrir því að það fólk sem við Auður höfum reitt okkur á með hennar mál í skólanum verið ekki á réttum stað og leggst það ekki alveg nógu vel í mig en það verður bara að koma í ljós þegar þar að kemur.

Annars er allt gott hér af okkur ég veit ekki hvað ég get blaðrað hér meira en ætla að reyna að vera virkari hér.

Svo ég kveð þá í bili.

PS ætla að búa til albúm sem heitir....sumarið 2008....og set inn myndir úr ferðinni um helgina.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Gaman að sjá loksins færslu frá þér
Þið hafið greinilega haft það gott, var að skoða myndir. Falleg börnin ykkar

Nú skalt þú vera híber bjartsýn og ég leggst á bæn fyrir þig að skólinn eigi eftir að ganga vel hjá krökkunum

Knús á þig

Hulla Dan, 6.8.2008 kl. 10:54

2 Smámynd: Dísa Dóra

Já það er mjög gott að vera við Apavatn og flott svæði. 

Vonandi eiga skólamálin eftir að ganga vel hjá frænku

Dísa Dóra, 6.8.2008 kl. 11:26

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ásta sæt með skólatöskuna sína. Hún getur sko vel verið montin  En hvað tíminn líður hratt, litla krílið að byrja í skóla. Vona að allt eigi eftir að ganga vel hjá Auði, það er svo mikilvægt.

Bestu kveðjur yfir til ykkar

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.8.2008 kl. 12:49

4 Smámynd: Ragnheiður

Kær kveðja til ykkar. Litla rófan að byrja í skóla.

Vonandi gengur allt að óskum hjá Auði, þessari elsku.

Knús á alla

Ragnheiður , 6.8.2008 kl. 13:03

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.8.2008 kl. 14:01

6 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Myndirnar eru æði og börnin algerar krúsídúllur.

Minn er líka að byrja í skóla núna og er hann búinn að telja dagana síðan í júní.  Skil vel kvíðann hjá þér, ég er að deyja sko.   Það skiptir svo miklu máli að allt byrji vel.  Ég krosslegg bara fingur með hnút í maganum.

Knús  

Elísabet Sigurðardóttir, 6.8.2008 kl. 15:22

7 identicon

Heiður mín, Ásta er alveg yndisleg með töskuna sína, blessuð stelpan. Bestu kveðjur frá okkur á Hringbrautinni

Sigríður Hilmarsdóttir (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 23:01

8 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Takk fyrir okkur,spennan er mikil hjá Ástu Sigríði.

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 8.8.2008 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband