16.11.2008 | 19:24
Í dag er afmælisdagur.
Í dag er afmælið hans já afmæið hans Hilmars þetta er alltaf erfiður dagur en alls ekki eins og í fyrra (var búin að ræða þetta í síðasta tíma hjá sála svo ég var kannski líka búin að koma frá mér einhverju sem hjálpar) hans er sárt saknað hér og síðustu daga fyrir afmælið hugsa ég mikið til hans,ég var að skoða kertasíðuna hans og mikið er gott og fallegt að sjá öll kertin og ég ætla hér að þakka öllum fyrir þetta yljar manni óendalega mikið og þeir sem vilja geta kveikt á kerti linkur hér til hliðar á síðunni...
En í tilefni dagsins langar mig að setja hér myndir af honum þetta eru myndir í mínu uppáhaldi eða bara brot af þeim sem í uppáhaldi eru...
Hér er Himmi með Sverrir litla bróður sinn.
Snemma var farið að laga dótið sitt .
Þetta er Hilmar Már já brosið allaf til staðar...
Við fórum í bæinn og í krikjugaðin með rós fyrir Himma okkar ætluðum að setja kerti en það var kerti í luktinni svo það bara geymist og fer seinna,svo fórum við og hittumst hjá Röggu og fengum kaffi og pönsur og hittum fólkið sem er alltaf svo gott.
Kveðja til ykkar allra sem hér koma Heiður
Athugasemdir
Takk fyrir daginn Heiður mín, það munar svo miklu að hittast svona á verstu dögunum, fæðingardeginum hans og dánardeginum
(ég er svo bara símtali eða emaili burt ef eitthvað vantar ykkar megin)
Ragnheiður , 16.11.2008 kl. 19:37
Helga Magnúsdóttir, 16.11.2008 kl. 19:40
Kærleikskveðja til ykkar
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 16.11.2008 kl. 22:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.