11.10.2007 | 17:49
Reykjavíurferð og fleyra.
Já ég skrapp í Reykjavíkina í morgunn með henni Ástu vinkonu minni (ekki leiðinlegt fyrir okkur)það er búið að kaupa allt fyrir litlu kisuna sem er væntanleg á heimilið á næstu dögum ég og börnin fórum fyrir síðustu helgi og keyptum allt nema sand og mat en nú var unga fólið á heimilinu komið með frekar miklar áhyggjur af því hvort ekki ætti að kaupa þetta áður en hann kæmi,svo það var farið í morgunn og nú er allt klárt og bara tilhlökkun og eftir vænting hér.
Ég keypti líka nýja myndavél fyrir okkur en gamla vélin gafst upp fyrir um hálfum mánuði(úpps hvað gamla vélin var orði old )því svo mikið veit ég að hún Ásta Sigríður ætlar að láta taka mynd af sér með litlu kisu og fara með í leikskólann og eins gott að redda myndavél.
Svo fór ég með filmur í framköllun á föstudaginn í Hafnarfirði og ég vissi bara að það væru gamlar myndir en ekki hvað var á þessum filmum þetta voru mest myndir síða 2003 og 2004 sem var bara gaman að skoða,ég var nú pínu að vona að það hefðu verið einhverjar myndir af Himma og vildi aðalega fá þær þá framkallaðar,ég set svo inn fleyri myndir úr þessu annað hvort á barnaland eða hér.
Set hér til gaman 2 myndir af Sverrir draga Ástu en það vantar allan snjó...og svo Auði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.10.2007 | 20:06
VÁ
![]() |
Gjöf frá John og Yoko og íslensku þjóðinni til heimsbyggðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.10.2007 | 15:55
24 stundir.
er blað sem fylgdi Morgunblaðinu í morgun ég hef nú stundum kíkt í þessi blöð en í þessu blaði er grein með fyrir sögninni "þarf egg frá annarri konu"ef ég sé greinar teingdar þessum málum les ég þær alltaf,því ég er ein af þeim sem ekki gekk að verða ófrísk tvö eldri börnin eru lifja frjókuð en svo kom litla skottið á eðlilegan hátt,mér finnst samt umræðan hafa opnast síðan ég stóð í þessu fyrst fyrir um 13 árum(dóttir mín er 12 ára síðan í febrúar)mig langaði bara að benda á þetta eflaust eru mjög skiptar skoðanir á þessu eins og öllu en ég hef alltaf samúð með þessum konum og finnst þær hetjur að koma fram með þessi mál.
Æj svo get ég ekki sótt þessa frétt í blaðinu eins og ég ætlaði en fyrir þá sem vilja þá er hún á bls 4 í 24 stundir aukablað í dag,ef einhver getur sagt mér hvernig ég get náð í þessa frétt skal ég glöð reyna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2007 | 18:28
Sunnudagur.
Það er komin sunnudagur ok flott í gær var bara ekki minn dagur hann fór að mestu þ.e fyrri hluti dagsins á liggja í rúminu ég fékk svo slæmt mígreni "þetta er örugglega ekki rétt skrifað" en hvað með það að ég stóð ekki í fæturnar og mikið var ég feginn að hinn helmingurinn var heima til að hugsa um ungafólkið og sjá til þess að allir fengu sitt nammi á laugardegi ...nema hvað var nú betri þegar líða tók á daginn og hrestist en var slöpp samt það sem eftir lifði degi...
En í dag er sól og gott veður og er ég svakalega feginn því mér finnst komið nóg af rigningur við fórum í bæinn því hann Sigþór er þrítugur í dag....til hamingju með daginn gamli.... við fengum líka þessa flottu veislu hjá þeim og hittum börnin sem ég hitti ekki í gær því hann Sigþór kom og náði í Auði systir sína og gisti hún hjá Sigþór og Írisi í nótt ...gaman fyrir svona gisti sjúkinga eins og Auði.
Svo komum við í Kirkugarðinum og litum við hjá Himma okkar sem mér finnst alltaf mjög gott en svakalega erfitt við vorum mjög ánægð með að einhver hafði kveikt á kertinu sem við fórum með síðast og ekki gekk að láta loga á og þegar var búið að stoppa smá stund fórum við af stað heim á leið og hittum þá Röggu og Bjössa og svo Steinar og Ragga hafði auðvita kveikt á kertinu það var gaman að hitta þau.
Svo bara að muna Himma ljósin fallegu.
Mig langar að segja ykkur hvað ég er glöð hvað margir hafa fundið bloggið mitt hér sem ég er kannski ekki í sambandi mikið við en endilega gerið var við ykkurí komment eða gestabók..
Kveðja Heiður...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.10.2007 | 10:58
Komin tími
til að skrifa hér af þessu heimili er allt gott að frétta dagarnir að mestu eins vinna skóli borða og sofa... í gær var 4 oktober sem er dánardagur pabba hann dó 1998 fyrir 9 árum æj ég sakna hans alltaf svo mikið þó ég hafi alltaf verið talin mikið mömmu stelpa þá var pabbi mikill maður í mínu lífi mig langar að rifja upp smá frá minni æsku,mamma mín var ljósmóðir og starfaði á Patró alla sína tíð og þegar mamma var að taka á móti var einfaldlega ekki hægt að ná í hana og þá varð maður að nöldra í pabba staðin og þegar mamma var með langar fæðigar sem kom stundum fyrir þá eldaði pabbi og þá var sko hakk og spagette ekki leiðinlegat eða hakk og gríta það eldaði bara pabbi það var þannig að ef pabbi vakti mig í skólann á morgnana þá hafði mamma farið út um nóttina þá hugsaði ég oft YES hakk og gríta í matinn í kvöld svo á meðan var borðað morgunn matinn þá var sagt við pabba er hakk og gríta í kvöldmatinn....pabbi var líka svo mikill afi hann naut þess svo að vera með barnabörnin sín þegar ég kom vestu með börnin var það bara afi og aftur afi,og þau bæði mamma og pabbi Himmi talaði líka oft um að hann ætti auka ömmu og afa og hann átti auðvita auka sett af öllu og þegar pabbi var að koma með eitthvað fyrir hann þá sagði hann afi er svo góður æj þeir hafa nú hist,þetta er gott af æsku minningum í bili.Svo var líka mánuður í gær frá því að ég gekk þann erfiðasta dag í lífi mínu að fylgja honum Hilmari til grafar æj hvað ég sakna þeirra mikið elsku strákarnir mínir svo er líka hann Eyji bróðir hjá guði eins og er sagt hér ég sakna þeirra allar svo mikið...
Ég fékk líka æðislega flotta mynd af Hilmari í gær Auður kom heim í frímínútum með ljósritaða mynd af Himma sem er í árganga bók í skólanum hún er tekin þegar hann var í 10 bekk svo kom Lilja vinkona mín hér í morgun og sá myndina og fór ég að segja henni að ég ætlaði að tala við bókasafnið í skólanum og vita hvort ég mætti fá bókina lánaða og hún bauðst til að tala við pabba sinn(hann er skólastjóri hér) því hann væri með svona bók á sinni skrifstofu og hún sagði að hann ætlaði að reina að redda bók fyrir mig og fæ ég 2 ef Ragga vill fá líka.
En jæja ég og börnin ætlum að fara í bæinn í dag og kaupa það sem kisan þarf og er spennan mikil hjá þeim svo hittum við pabba líka hann er alltaf búin snemma á föstudögum.
En jæja nú ætla ég ekki að skrifa meira í bili og ætla að kveikja á kerti fyrir strákana mína... minni bara á kertasíðuna hans Himma
Kveðja Heiður....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.10.2007 | 20:24
ÆJ
hvað ég er búin að vera löt að skrifa hér og ætla ekki að skrifa mikið...en það er eitt sem mig langar að segja samt hér bara vegna þess að mér finnst þetta óendalega sætt og fallegt...hún Ásta litla mín sem er bara 5 ára er að teikna hér við hliðina á mér hún er að teikna mynd af sér og Hilmar bróðir sínum og ætlar svo að setja þetta á himmaborðið okkar hér í stofunni......æj hún spyr svo mikið um hann og talar svo mikið um hann svona til að skíra betur eru þau í takkaskóm svo eru ský og blóm.... þetta er svo sætt.
kveðja Heiður
Bara muna eftir Himma ljósum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)