Riddari götunar.

MotorhjolHér kemur rauði hippinn...en það var alls ekki aðalmálið....

Aðalmáið er að Gísli fór í mótorhjóla prófið í dag og hann náði því sko kallinn Wink.

Ein góð vinkona mín hún Ásta vildi endilega að fá gott lag fyrir kallinn og læt ég það fylgja hér með...

http://youtube.com/watch?v=6HQYlCNma9A.

Kveðja Heiður.


Í sól og sumar yl.

Góðan daginn hér...jæja bara frábært veður hér í Grindavíkinni í dag og búin að vera úti í mest allan dag sem er bara frábært...við vöknuðum ekki fyrr en rétt fyrir 10 í morgunn og Sverrir settur í bað eftir morgunnmat en litla skottið hún Ásta vaknaði kl.11,30 svo var fengið sér bita í hádeginu en í dag byrjaði Sverrir á leikjanámskeiði kl.13 og voru hjólin tekin framm og hjóluðum við saman upp í Þrumu þar sem námskeiðið er svo héldum við áfram ég og Ásta og fórum í smá heimsókn á leikskólann hennar Krók hér var eitt og annað sem Ásta hefði fengið lánað og við fóru og skila Ásta var hálf feimin því allir voru svo glaðir að sjá hana og besta vinkona hennar koma hlaupandi og þær féllust í faðma oh þetta var svo sætt InLove,svo var hjólað heim en þegar við vorum komnar að húsin hjá Ástu vinkonu minnar stóð hún úti á miðri gangstétt og sagði okkur að Emilia hefði farið í fótbolltaskóla og Ásta vildi fá að fara líka svo það var stokkið upp í bíl til Ástu og upp í gulahús og Ásta ætlar að vera í fótbolltaskæola í 3 vikur kom heim sæl og ánægð eftir æfingu,en ég fór og kíkti á hana Grímu vinkonu mína (hundur sko)ég hef ekki séð hana í 10 daga eða svo vá hún er orðin svo stór við sátum út á bletti í góða stund ég og Ásta vinkona svo hjólaði ég heim svo kom Siggi sem sér um að tréin mín séu vel til höfð og það þurfti að eitra og var úðað yfir allt en svona til pínu skemmtunar þurfti að ná inn köttunum svo þeir yrðu ekki eitraðir líka og það hófst svaka eltina leikur við að ná Skellur úr trjánum hún ætlaði bara að vera þarna Grinen ég ekki jafn ákveðin í því W00t,en svo ákvað ég að fara og redda mér smá mold í ker og setja sumarblómin í sem áttu að vera komin til skrauts hér fyrir utan fyrir löngu en sko eru komin til skruats en mig vanntar fleyri potta eða drepa blómin hér fyrir utan.

Auður fór í ferðalag með Erlu frænku sinni um helgina og kom heim um 22. í gærkvöldi alveg í skíjunum  eftir vel heppnaða helgi og svo fór hún á bát niður á svo sagði hún:mamma ég hennti mér sjálf í ánna geggjað gaman og brosti út að eyrum en stoppið var stutt hjá mömmu og var skipt um í töskunni og komin í Keflavík kl. 23. til Ástu frænku að passa litlu sætu Eyjólf og Ágúst og kemur ekki heim fyrr en á  sunnudag.

Jæja þetta er gott hér í bili þarf að finna eitthvað að borða handa glorhungruðum börnum .

Kveðja Heiður... 

 


Ég er búin að vera í

Afslöppun í mest allan dag eða ég er ekki búin að gera neitt, Grillið var æðislegt í gær rosalega gott að fá grillað kjöt og með læti....eftir veturinn....namm

En gesturinn er farin og ætlar að koma aftur á morgunn en fer svo austur heim til sín á mánudaginn það var auðvita fjör þegar koma gestir sem ekki koma oft þá er bara spjallað farmm eftir öllu og það var gert í gær.

En svo þegar ég vaknaði í morgunn hentist ég frammúr því Sverrir þarf að fá lyfin sín ekki seinna en 10 á morgnana og klukkan var 9,55 hussss og dagurinn hefur farið í bara leti ég lá í sófanum og horfði á bíórásina mjög góð dagskrá í dag en svo þegar klukkan var að verða 16 þá var ég orðin frekar þreitt að liggja svo ég fór að athuga með saumadótið sem ég vissi að var til hef ekki hreift það í bráðum 3 ár og jú ég settist í sófann og fór að sauma hunda mynd sem ég fann í skúffunni, fyrir svona 5 árum panntaði ég upp úr saumalista litlar fallegar myndir sem hægt er að sauma nafn og fæðingar dag barnsins  og panntaði ég 4 eina fyrir öll börnin á heimilinu  svo var fólk að skoða þetta hjá mér og allir vá hvað þetta er sætt og fékk ég þá hugmynd ég fór og keipti garn og stramma og ég saumaði fyrir allt litlafólkið í fjölskyldunni á þeim tíma og gaf í jólagjöf held að þetta hafi endað í 13 myndum úffff hvað ég var komin með nóg eða bara alveg upp í kok af þessu munstri og svo um daginn þá fer vinkona mín að spyrja mig hvort ég myndi vilja sauma svona fyrir dóttir sína því ég hafði gefið syni hennar eina mynd ég sagði auðvita já ég skal gera það svo ég skoðaði munstrið í dag og ég er að hugsa um að gera svoan fyrir eina litla vinkonu tvo litla frændur og svo áttaði ég mig á að ég á einn lítinn vin í viðbót sem mig langar að gefa líka eina....

Jæja ég man ekki meira í bili svo ég kveð í bili kveðja Heiður. 

 


Ferðalög grill og aðeins meira.

 

Góðan daginn hér.

Komin föstudagur og vikan á enda jæja hér glaðnar yfir veðri sú gula fain að láta sjá sig og þá glaðnar maður í hjartanu,hér verður líf og fjör í kvöld ætlum að hittast nokkrir vinir og fjölskyldur og grilla saman hér er að mæta góður vinur af Austfjörðum.

Er að reyna að taka til og undirbúa grillið eða á að vera að gera það FootinMouth,Auður verður að vísu ekki með okkur því hún fór í gærkvöldi til Erlu frænku sinnar og ætlar með henni í útilegu í Skagafjörðinn sem verður örugglega gaman þær eru svo góðar þessar frænkur svo kemur hún heim á sunnudags kvöld þá er að skipta út skítugum fötum og bæta við hreinu og svo skutla ég henni í Keflavíkina en þar ætlar hún að passa 2 ára frænda sinn í sumar hún verður í burtu í viku og heima í viku og er stefnan tekin vestur á hótel ömmu á Patró fyrstu vikuna uss mig langar með...en ekki er allt í boði svo ég verð að fara seinna og anda af mér vestfisku eðal lofti Cool.

Litlu krakkarin eru bara að leika sér hér er staddur vinur Sverris hann átti heima hér í eitt ár og flutti svo norður í land og urðu miklir fagnaðar fundir þegar hann kom og Sverrir er alveg í skíjunum.

Sverrir ætlar að fara á leikjanámskeið sem byrjar á mánudaginn og verður það gaman við erum búin að fá dagskrá og verður nóg að gera hjá honum þessa daga.

Þetta er orðið gott er farin að taka til og fara svo í búð heyrumst kveðja Heiður. 

 


Góðir hlutir gerast hægt.

Eða það ætla ég að vona,mig langar að segja aðeins meira um þessa fæslu sem ég skrifaði í gær svona smá frammhald http://www.snar.blog.is/blog/snar/entry/559299/#comments hér er hún,það var hringt í mig í gær dag og var það sálfræðingurinn hennar Auðar við ræddum aðeins þetta viðhorf félagsmálayfirvalda og sagði ég honum að ég væri mjög sár og mér þætti gengið á okkar rétt og barnsins okkar hann var alveg sammála mér og spurði hann hvort ég vildi ekki nýta mér það hann bauð á fundinum sem er að taka Sverrir inn í ákveðið teimi sem HSS er með en það verður sennilega ekki fyrr en í haust og þetta gæti hjálpað honum ég auðvita þigg það ég í raun þigg allt sem getur hjálpað.En svo spurði hann hvernig mér liði sjálf ég auðvita vildi meina að ég næði mér hægt og rólega en málið er að hann vill líka að við foreldranir fáum hjálp til að vinna úr fyrr reinslu við félagsmálayfirvöld það er þegar ég barðist sem mest Hilmars vegna,ég eins og ég sagði áðan ég þigg allt sem getur hjálpað og sem sagt er hann farin af stað að ganga í mál fyrir alla fjölskylduna hann ætlar að tala við Sólveigu sem ég var hjá í vetur og fá hana og svo eitthvað meira sem ég veit ekki núna alveg hverir verða en hann ætlar að ræða við félagsmályfirvöld um að þau komi að einhverju leiti inn ekki með aðstoð heldur að þeir greiði kostnað af þessu.

Ég er auðvita klökk og ofsalega ánægð ef þetta gengur upp svo ég er lögð af stað þennan þrönga bata veg segi ykkur meira þegar ég veit meira um þetta allt,einnig vil ég þakka ykkur kæru vinir fyrir kommentin hér í fyrri fæslu þetta gerir ótúlega mikið fyrir mig og okkur öll hér.

Kveðja Heiður.


Hvernig virkar kerfið ? það er fallið í mínum augum.

Þessa dagana eru ákveðnir hlutir að pirra mig,mig langar líka að segja hér 2 sögur bara til að sýna að mér finnst kerfið rotið ég vona líka að ég halli ekki á neinn þó ég komi hér með mína sögu og mitt álit.

Hér kemur fyrri sagan:Eins og flestir vita átti og á enn ég stjúpson og þótti og þykir enn mikið væntum þennan strák þetta er hann Hilmar hann var eitt af þessum börnum sem var greindur ofvirkur með athygglisbrest misþroska og allan þann pakka það var þannig að hann fór sínar eigin leiðir í lífinu og hann þurfti mikið aðhald hann átti erfitt félagslega en hann átti einn góðan vin hann tók líka þátt í ýmiskonar uppátækjum sem oft varð til þess að löggan þurfti að skipta sér af,og var það að félagsmála yfirvöld hér voru oft í hans málum sökum aldurs mitt mat var það að hann þurfti hjálp og þannig hjálp að kerfið varð að vinna með og taldi ég líka að gott hefði verið að okkur foreldrum hans væri leiðbeint á einhvern hátt hann átti líka 2 sett af foreldum sem elskuðu hann og vildi allt gera til að hjálpa honum í stuttu máli barðist ég við kerfið í mörg ár eða frá 1998 til 2003 held svona nokkuð rétt,eina lausnin var að senda hann í sveit út um allt land til að kvíla okkur foreldrana stundum hélt ég líka að þetta væri lausn en það var það alls ekki það var ekki gert neitt fyrir hann eða neitt til að hjálpa honum félagslega og ég held í dag að það var stæðsta vandamálið hans,svo varð hann 18 ára og þá geta foreldrar ekki gert mikið en eins og flest vita þá dó hann í ágúst 2007.

Og þá má segja að það byrji nýr kafli af erfileikum sem saman stendur af sektarkend ásökunum og ótal spurningum en engum svörum heldur kemur hér prestur og flytur manni þessar hörmulegu fréttir og hvað engin hjálp til okkar sem eigum um sárt að binda(ég skrifaði um áfallahjálp 27 apríl og er hún hér aftar ef einhverir vilja lesa) hann átti mörg systkini sem við foreldrarnir öll 4 höfðum áhyggjur af.

Hér kemur önnur saga:En svo er það eins og hlutirnir eru í dag,eftir svona áfall brestur eitthvað og ég einfaldlega brotnaði alveg samna og hugsaði stanslaust ef ég hefði gert svona þá hefði þetta kannski ekki gerst ég fór að naga mig að innan og smátt og smátt brotnaði ég alveg niður og gat ekki meir en eins og þeir sem hafa fylgst með hér fór ég í viðtöl í vetur og er auðvita miklu betri en það er líka langt eftir,en staða mín og minna barana er þannig að 2 börn í skóla og 3 barnið fer næsta haust og hef ég þurft að berjast við skóla kerfið í 7 ár eða allt frá því að Auður byrjar í skóla(hún er greind með athyglisbrest) hún er ýlla stödd námslega en alveg rosalega vel félagslega en svo þegar Sverrir byrjar í skóla fyrir 3 árum þá einfaldlega passaði ekki þetta fyrir hann og upp komu stór valda mál í skólanum og að endanum gáfust allir upp og vegna þess að Auður var með sérfræðing var ég beðin um að athuga hvort hún gæti greint hann sem fyrst ég var búin að hafa áhyggjur af honum lengi og búin að ræða um það við læknirinn og hún sagðir að um leið og ég fengi skólann með mér þá eitt símtala og hann inn(Sverrir greindist í 1 bekk)það kom svo í ljós að Sverrir greindist með ofvirkni og athygglisbrest og skoraði hann mjög hátt hann á líka félagslega erfitt en þá var hann búin að missa allt fyrsta árið úr skóla og þá eðlilega koma farmm námserfileikar og er ekki búið að vinna úr því,en í vetur var það gert að Sjónarhóll var fengin inn í málið og er ég mjög sátt við það þeir vildu fá félagsþjónustuna inn á fundi til að kanna hvort væri eitthvað hægt að gera fyrir Sverrir og líka hvort hægt værir að fá stuðning fyrir börnin til að við sem foreldra gætum unnið úr okkar málum og svarið var NEI við fáum einfaldlega ekki neitt, fyrst kom starfsmaður frá félagþjónustunni og gat hún litlu svarað en svo í gær var fundur til að fara yfir veturinn að loknum skóla og undirbúa næsta vetur og mætti félagsmálastjóri og hef ég ákveðið að fara ekki framm á neitt nema ef hægt væri að hjálpa Sverri félagslega Nei hann fellur ekki inn í þetta út frá þroskaskalanum skalla ég sagði þá að félagslegir efrileika væri mjög erfið mál og svarið sem ég fékk frá félagsmálastjóranum var vissulega en hann fellur ekki inn þroskalega séð,mér var bennt á leikjanámskeið fyrir hann og sagði ég að ég hafi sótt um það og hafi viljað fá 2 námskeið en ég get ekki fengið nema 1 og 1/2 því það var allt full á fyrsta og 2 og 3 skarast á okkur var ekki einu sinni boðin hjálp við að græja það ég nefdi líka að mér hefði fundis gott ef hægt hefði verið að hafa leikjanámskeið í júlí en þá var mér bennt á að sennilega yrði smíðavöllur hér og gæti ég notað það gott og vel ég get það en ég verð að vera með honum þar(þar sem oft er allt skemmt þar og hann á mjög erfitt með alla höfnun),ég hefði vilja fá stuðnings fulltrúa fyrir hann sem einmitt gæti farið með honum þetta því ég er með fleyrir og yngri börn og á ekki að þurfa að fá barnapössun fyrir Ástu svo ég geti farið með Sverri en get vissulega tekið hana með en stundum er það að hana langar ekki að gera það sama og hann og niðurstaða mín er að félagsmála yfirvöld hér eru jafn ýlla sett með hjálp fyrir börn með þessa greiningu eins og Sverrir og var þegar ég fór fyrst vegna Hilmars.

Þetta er svona í stórum dráttum alls ekki tæmandi ef ég ætti að skrifa það allt yrðu það margar blaðsíður,ég veit líka vel að börn með miklar fatlanir þurfa mikla hjálp og er ég alltaf mjög glöð að heyra ef þeim er vel sint,fyrir okkur er jafnvel verið að tala um tímabundna aðstoð,en svona er þetta ég er mest sár út í kerfið.

Hér er linkur inn á áfallafæsluna sem vilja lesa http://www.snar.blog.is/blog/snar/entry/522014/#comments

Kveðja Heiður. 

 


Hippinn er rauður

Er bara löt að blogga í dag en ætla að sýna nýja leifangið hans Gísla.

Motorhjol

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er gripurinn svakalega fallegt... 

mótor 002

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo er frúar sæti Whistling.

Nú er hann á fullur að læra á gripinn til að geta keyrt.

Kveðja Heiður. 


Börnin eru búin með skólann þennan veturinn.

Jæja góðan daginn.

Það er búið að vera nóg að gera hér í morgunn við fórum á fætur ég og litlu börnin kl 8 í morgunn og allir ferkar þreittir eftir helgina en við áttum að vera mætt upp í skóla kl 9 á skólaslit og er þetta ca klukkutími þá var að hlaupa heim og vekja Auði því hennar skólaslit voru kl 11 tíminn á milli notaður til að fara og kaupa brauð til að gefa mannskapnum að borða,skólaslitin eru alltaf sá tími sem maður er fegin komin í frí og getur farið að hugsa um sumarið Sverrir heldur að öllum líkindum sínum umsjónar kennara Joyfulog er ég mikið fegin því hún er alveg frábær kennari og hefur náð vel til Sverris,hjá Auði verður mikil breiting hún er auðvita að fara í 8 bekk og er að flytjast á milli deilda í skólanum og svo vissi ég fyrir nokkrum vikum að hún myndi skipta um umsjónar kennara og var ég frekar spennta að vita hvort væri búið að ákveða hvaða kennara hún fengi og jú við fengum að vita það og finnst mér það mjög gott og ég er mjög ánægð með hvaða kennara hún fær,Ásta er eins og framm hefur komið hætt í leikskólanum og var hún alveg ákveðin í að fara með okkur og svo þegar skólaslitin hjá Sverri voru búin tilkynnti hún að hún ætlaði ekki með aftur ég spurði afhverju og hún svaraði ég nenni ekki að hlusta á þessa karla og kerlingar tala meira Shocking og hugsaði ég bara uss hvernig verða næstu 10 ár hjá henni í þessum skóla Wink, en hún fór bara að leika við vinkonu sína.

Svo eru fleyri fréttir af þessum bæ gamlinginn er að fara í mótorhjóla próf og sest hann á "skólabekk" í kvöld en þá byrjar bóklegi hlutinn og veit ég ekki hvernær keirsla og verklegi hlutinn er og til að koma öllu á hreint er hann búin að finna hjól sem stefnt er að að kaupaW00t.

En annars er allt gott að frétta og ég veit ekkert hvað ég á að bulla hér meira þannig að ég kveð í bili en þangað til næst yfir og út Heiður. 

=========================================

Set hér söfnunina fyrir Öldu ég var ein af þeim sem ætlaði að gera þetta um mánaðrmótin og allt í einu mundi ég hvað ég ætlaði að gera set þetta hér ef einhverir eru jafn mikið gúbbý minni og ég.

 

Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu
 

Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá, Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda sem er borin og barnfæddur hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar.

Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum.  Lárus og  Alda  eiga þrjár  litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7ára. sem þurfa á hans umönnun að halda, og einnig okkar stuðnings í þessari baráttu.
Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur handa þessari fjölskyldu í Sparisjóð Hornafjarðar.
Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum  þeim lið!!
Margt smátt gerir eitt stórt.

Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379.

Velunnarar.



Myndasýning.

Við fórum á hátíðarhöldin í Grindavík í dag og var boðið upp á uppblásin leiktæki og fullt af nammi og fleyra,börnin höfðu ekki mikin áhuga fyrir þessum uppblásnu tækum foreldrunum til mikillar ánægju það var svo langar raðir og þau nenntu ekki að bíða,en mig langar bara að sýna hér í myndum það sem börnin gerðu og svo var bara gengið um svæðið.

Sjómannadagurinn 2008 001

 

 

 

 

 

 

 

 

Ásta fór í velti bílinn 3 veltur hér er hún á kvolfi.

Sjómannadagurinn 2008 002

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var farið um borð í Odd V Gíslason(Sverrir fannst mjög skrítið að báturinn væri Gíslason eins og hann)

Sjómannadagurinn 2008 010

 

 

 

 

 

 

 

 

Sverrir fór á fjórhjól smá torfærubraut hér er Sverrir til í slaginn.

Sjómannadagurinn 2008 012

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér fer Ásta af stað á fjórhjólinu.(hún fékk aðalsætið eins og stjórnandinn sagði)

Sjómannadagurinn 2008 020

 

 

 

 

 

 

 

 

Ásta Sigríður skellti sér líka á mótorhjól með Grindjánum (Bifhjólaklúbbur hér)og kom alsæl til bara tróða sér svo fremst í röðina og aftur með sama manninum ég ætlaði að leifa fleyrum og sagði hún er búin að fara en maðurinn tók hana upp og sagði allt í lagi hún fer bara aftur og þar með var hún farin aðra ferð en ég flítti mér í burtu með hana áður en ég misti hana í 3 ferðina Whistling.

Sverrir vildi ekki prufa mótorhjól varð pínu hissa en þó ekki hann er með svakalega lítið hjarta og fannst mér gott að hann hætti ekki við fjórhjólið...Auður var mest lítið með okkur svo það eru engar myndir af henni en hún hringdi í mig og spurði hvort hún mætti stökkva í sjóinn og ég alveg NEI.. og er guðs lifandi fegin að hafa ekki séð þegar hún stökk FootinMouthman enn eftir því þegar Hilmar gerði þetta þá minnir mig að hann hafi verið 15 ára hann fór í fötum til að stökkva því hann var búin að tala um það heima áður en við fórum og svo stökk hann og ég hélt að ég...úff móðurhjartað var alveg í buxunu og svo sagði ég Gísla að láta mig vita hvort væri í lagi og þá leit ég ofan í höfnina og sá þegar hann var togaður upp í björgunarbát...ég veit að það eru fullt að mönnum og bátum til að bjarga en ég hlít að meiga láta svona ég bara get ekki gert að þessu....þetta eru börnin mín.

En þetta er dagurinn í dag kemur í ljós hvað gerist á morgunn...góðar stundir. 

Set fleyrir myndir frá deginum í albúm merkt.....börnin mín 

Kveðja Heiður. 


Stór stelpa Stór kisa og eitthvað fleyra.

Jæja þá er sjómannahelgin að ganga í garð og hér í Grindavík og sjóarinn síkáti að mæta á svæðið hér er mikið um að vera alla helgina og byrjar þetta í gær en svo er mikið um að vera hér bryggjuball í kvöld leiktæki og skemmtun allan laugardaginn og sunnudaginn.

En svo er stór dagur í lífi Ástu Sigríðar hún er að hætta á leikskólanum í dag og í morgunn fór hún hress og vösk að venju og sagði mamma þegar leikskólinn er búin í dag þá er ég ekki lengur á leikskóla því ég er orðin stór Whistling en kl 17 verður vorgleði í leikskólanum og er ferðinni heitið í skógin við seltjörn og þar á að grilla pylsur og leika saman með börnunum í 2 tíma þetta verður bara gaman svo verður farið heim og ef verður ekki mikil rigning þá er bara bryggjuball í kvöld.

Annars er allt gott að frétta skólinn alveg að klárast skólaslit á máundaginn og komin mikil tilhlökkun í Auði og Sverrir ég þarf að mæta á 2 af þremur skólaslitum þetta árið....

Svo er smá kisu fæsla hér í restina ég á litla skrítna kisustelpu sem heldur að hún sé stór(eins og fleyrum á þessu heimili) en hún vill semsagt ekki borða neinn ketlinga mat hún borða bara fæði eins og Sokkur og Sokkur borða ketlinga fæðið og hvað þá hann verður feiturW00tég fór og keypti ól og merki á fröken Skellu því hún heldur líka að maður geti farið á flakk og ekki nema 8 vikna og mér var sagt að það væri allt í lagi að hún borðaði matinn hans Sokks en gefa henni vítamín svo það var keypt svona ketlinga vítamín en ætli sé ekki best að segja henni að þetta sé fyrir stóra kisu....Smile.

Jæja er farin að sækja stóra barnið sem er að hætta á leikskóla....kveðja Heiður  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband